Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Sindri Sverrisson skrifar 29. ágúst 2026 22:03 Victor Bertomeu fékk fyrirlestur frá dómaranum Þórði Þorsteini Þórðarsyni í Eyjum í dag. Sýn Sport Spánverjinn Victor Bertomeu, leikmaður Þórs frá Akureyri, gerði sig sekan um ansi óíþróttamannslega hegðun í leik við ÍBV í Vestmannaeyjum í dag en hún gæti þó hafa skilað árangri.
Eyjamenn fengu víti eftir um hálftíma leik gegn Þór í dag, í Bestu deild karla í fótbolta. Á meðan beðið var eftir því að vítaspyrnan væri tekin sást Bertomeu, sem kom til Þórs fyrir mánuði síðan, hrækja beint á vítapunktinn. Klippa: Hrækti á vítapunktinn í Eyjum Þetta fór ekki framhjá dómaranum Þórði Þorsteini Þórðarsyni sem sýndi Bertomeu gula spjaldið. Í kjölfarið tók landi Bertomeu, Vicente Valor, vítaspyrnuna en eftir að hafa þurft að bíða dágóða stund með að spyrna skaut hann boltanum framhjá og mistókst að koma ÍBV yfir. Bertomeu virtist eitthvað illa fyrir kallaður í leiknum og má kannski prísa sig sælan að hafa ekki fengið sitt seinna gula spjald og þar með rautt áður en Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, kippti honum svo af velli strax í hálfleik. Þórsarar enduðu á að vinna leikinn 1-0, þrátt fyrir að Bjarni Guðjón Brynjólfsson fengi rautt spjald á 83. mínútu, og komu sér þannig úr fallsæti. Þeir sendu erkifjendur sína í KA á botninn og ÍBV í næstneðsta sætið, en KA á þó leik til góða við Fram á morgun.
Besta deild karla ÍBV Þór Akureyri Tengdar fréttir Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Þórsarar gerðu virkilega góða ferð til Vestmannaeyja í 21. umferð Bestu deildar karla í dag. Unnu heimamenn í ÍBV með einu marki gegn engu og komu sér upp úr kjallaranum. Eyjamenn höfðu sætaskipti og eru í erfiðari stöðu en í upphafi dags. 29. ágúst 2026 18:59 Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira
Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Þórsarar gerðu virkilega góða ferð til Vestmannaeyja í 21. umferð Bestu deildar karla í dag. Unnu heimamenn í ÍBV með einu marki gegn engu og komu sér upp úr kjallaranum. Eyjamenn höfðu sætaskipti og eru í erfiðari stöðu en í upphafi dags. 29. ágúst 2026 18:59