Jón Axel frábær í sigri toppliðsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. desember 2024 13:02 Jón Axel Guðmundsson átti mjög góðan leik með toppliði spænsku b-deildarinnar. Vísir/Anton Brink Jón Axel Guðmundsson kom sjóðandi heitur til baka úr landsleikjaglugganum og hjálpaði San Pablo Burgos að styrkja stöðu sína í toppsæti sænsku B-deildarinnar.
San Pablo vann þá nokkuð sannfærandi tíu stiga heimasigur á Hestia Menorca, 91-81. Jón Axel endaði leikinn með 20 stig, 3 fráköst og 5 stolna bolta. Hann var stigahæstur í sínu liði og hitti úr átta af tólf skotum þar af 2 af 4 fyrir utan þriggja stiga línuna. Þetta er í annað skiptið á tímabilinu sem Jón skoraði tuttugu stig í leik en mest hefur hann skorað 21 stig. San Pablo tapaði síðasta leik fyrir landsleikina eftir að hafa unnið sjö fyrstu leiki sína. Jón Axel var kominn með 14 stig og 3 stolna bolta í hálfleik en hann hitti úr 6 af 8 skotum sínum í fyrri hálfleiknum. San Pablo Burgos var líka í mjög góðum málum með sautján stiga forystu í hálfleik, 47-30. Jón Axel skoraði ekki i þriðja leikhluta og Menorca minnkaði muninn niður í átta stig, 62-54. Jón skoraði fjögur stig á upphafsmínútum fjórða leikhlutans og Burgos menn voru fljótir að auka muninn. Burgos héldu síðan út og unnu nokkuð öruggan sigur.
Spænski körfuboltinn Mest lesið Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni Fótbolti Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Körfubolti Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Enski boltinn „FH er bara á sinni vegferð“ Íslenski boltinn Elías bikarmeistari í Danmörku Fótbolti Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Enski boltinn McIlroy klár þrátt fyrir sársauka Golf Fleiri fréttir Kane sektaður en ekki settur í leikbann Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Móðir heiðruð og ljótur olnbogi Búið spil hjá Elvari og félögum Sjá meira