Var hótað eftir útgáfu bókarinnar Tómas Arnar Þorláksson skrifar 6. desember 2024 22:13 Jón Ármann Steinsson einn höfundur bókarinnar. samsett mynd „Eiginlega getum við sagt að öll þjóðin ætti smávegis að skammast sín fyrir þetta. Það er að hafa ekki talað um þetta meira sín á milli út frá þeim upplýsingum sem voru til staðar í máli mann á milli, á þessum tíma.“
Þetta segir Jón Ármann Steinsson útgefandi bókarinnar Leitin að Geirfinni sem hefur vakið þó nokkuð umtal undanfarið. Bókin var gefin út 19. nóvember eða 50 árum eftir að Geirfinnur Einarsson, gekk út af heimili sínu í Keflavík og hvarf sporlaust árið 1974. Jón segist hafa fengið hótanir eftir útgáfu bókarinnar þó að viðbrögðin hafi að mestu verið jákvæð. „Það hefur verið smá hótun sem kom nafnlaus. Ég get ekki talað um það hér. En að öðru leyti kallar fólk okkur stundum algjöra vitleysinga, þangað til þau lesa bókina, þá kemur svona aha-móment.“ Lögreglan hafi mætt í skóla til að stöðva sögusagnir Jón sagði á útgáfudegi bókarinnar að morðingi Geirfinns væri enn á lífi og hélt því fram að hann vissi hver hafi vegið Geirfinn. Hann gagnrýndi jafnframt vinnubrögð lögreglu harðlega. Saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu gaf það út í kjölfarið af fólk eigi að fara með ný gögn í málinu rakleiðis til lögreglunnar á Suðurnesjum. Guðmundar- og Geirfinnsmálin eru flestum Íslendingum kunnug enda verið til umfjöllunar hér á landi í marga áratugi. Um tvö ár eru síðan að íslenska ríkið greiddi Erlu Bolladóttur 32 milljónir króna í miskabætur vegna 232 daga gæsluvarðhalds sem hún sætti í tengslum við hvarf þeirra. Málin tvö eru enn óleyst. Jón fagnar þeirrar miklu umræðu sem fór af stað í kjölfarið á því að bókin var gefin út. Hann segir marga lesendur hafa haft samband til að ræða málið við hann. „Það sem okkur hefur verið sagt af nokkrum aðilum, krökkum sem voru þá að alast upp á þessum tíma, að lögreglan hafi gengið frekar hart fram í því að þessar sögusagnir hættu. Meira segja komið í skólanna til að stoppa það að fólk væri að tala um þetta.“ „Öskrin og hávaðinn var svo mikill“ Hann segir lögregluna jafnframt hafa skipt sér af starfsemi blaðamanna varðandi málið. Hann segir þrjá íbúa á svæðinu þar sem voðaverkið á að hafa verið framið hafa haft samband við sig nýlega. „Þeir voru í húsunum í kring, öskrin og hávaðinn var svo mikill að fólki ofbauð,“ segir hann og segir vitnisburð þessa þriggja renna stoðum undir þær upplýsingar sem hann hefur áður fengið sem bókaskrifin voru byggð á. „Tíminn til að leysa málið sé af skornum skammti enda þeir sem tengist málinu komnir vel til ára sinna, 50 árum eftir atburðinn. Hann segir þjóðina eiga það skilið að málið verði leyst. „Nú þurfi hraðar hendur en við viljum ekki setja þetta mál og þessa vitneskju sem við höfum í þessum þrettánda kafla sem við ætlum að setja inn um leið og það kemur nýr Dómsmálaráðherra. Þá ætlum við að láta reyna á það.“
Guðmundar- og Geirfinnsmálin Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Sjá meira