Lofar að óheppni Liverpool-nýliðinn spili í kvöld Sindri Sverrisson skrifar 18. desember 2024 12:47 Federico Chiesa mætir væntanlega til leiks með Liverpool í kvöld. Hér er hann brosandi í leik með U21-liði félagsins gegn danska liðinu Nordsjælland. Getty/Nick Taylor Ítalski landsliðsmaðurinn Federico Chiesa hefur sáralítið spilað síðan hann kom til Liverpool í sumar en nú gæti verið að rofa til hjá þessum 27 ára fótboltamanni.
Chiesa var fyrsti maðurinn sem hollenski stjórinn Arne Slot fékk til Liverpool (markvörðurinn Giorgi Mamardashvili hafði þá reyndar verið keyptur en lánaður strax til baka til Valencia) og vonir stóðu til þess að eftir erfið hnémeiðsli, sem héldu honum frá keppni í tíu mánuði árið 2022, gæti þessi frábæri kantmaður blómstrað á nýjan leik á Anfield. Hingað til eru leikirnir hins vegar bara orðnir þrír, og mínúturnar innan vallar samtals 78 í búningi Liverpool. Síðast kom Chiesa við sögu 25. september en hann hefur síðan verið frá keppni vegna vöðvameiðsla. Í kvöld tekst Liverpool á við stjóralaust lið Southampton í enska deildabikarnum, í beinni útsendingu á Vodafone Sport, og þar má búast við því að sjá Chiesa spila. „Þetta er svo sannarlega tækifæri til þess að hann spili,“ sagði Slot á blaðamannafundi í gær en bætti við að ekki væri hægt að búast við níutíu mínútna leik hjá Ítalanum. „Federico mun ná mínútum [í kvöld]. Hvort það verður í byrjunarliði eða sem varamaður í seinni hálfleik er ákvörðun sem við tökum,“ sagði Slot sem sjálfur verður ekki á hliðarlínunni í kvöld vegna leikbanns, eftir þrjú gul spjöld. Leikur Southampton og Liverpool hefst klukkan 20 á Vodafone Sport.
Enski boltinn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Fleiri fréttir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Sjá meira