Napoli fyrst til að leggja Juventus að velli Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. janúar 2025 19:13 Leikmenn Napoli fagna. EPA-EFE/CIRO FUSCO Topplið Napoli kom til baka gegn Juventus í stórleik dagsins í ítalska boltanum. Lærisveinar Thiago Motta í Juventus voru taplausir í deildinni fyrir leikinn gegn Antonio Conte og hans mönnum í kvöld.
Það stefndi í markalausan fyrri hálfleik þegar boltinn féll til Randal Kolo Muani, sem gekk nýverið í raðir Juventus á láni frá París Saint-Germian. Framherjinn sneri á punktinum og náði fínu skoti í fyrsta sem hafnaði í netinu. Staðan 0-1 þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks. Conte hefur messað yfir sínum mönnum í hálfleik því Frank Anguissa var búinn að jafna metin á 57. mínútu eftir sendingu Matteo Politano. Þegar rúmar tuttugu mínútur lifðu leiks fékk Napoli vítaspyrnu þegar Manuel Locatelli gerðist brotlegur innan eigin vítateigs. Romelu Lukaku fór á punktinn og sendi boltann niðri í hornið vinstra megin. Staðan orðin 2-1 og reyndust það lokatölur kvöldsins. Napoli er á toppi deildarinnar með 53 stig að loknum 22 leikjum. Inter er í 2. sæti með 47 stig en á þó tvo leiki til góða. Juventus er í 5. sæti með 37 stig.
Fótbolti Ítalski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Sjá meira