Kjarasamningur kennara í höfn Kolbeinn Tumi Daðason og Samúel Karl Ólason skrifa 25. febrúar 2025 22:09 Inga Rún Ólafsdóttir formaður samninganefndar sveitarfélaganna og Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands fallast í faðma að lokinni undirritun. Vísir/Vilhelm Kjarasamningur Kennarasambands Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga og ríkið var undirritaður í húsakynnum ríkissáttasemjara á tólfta tímanum í kvöld. Samningurinn er mjög svipaður þeim sem sveitarfélögin höfnuðu á föstudag. Það var á ellefta tímanum í kvöld sem Vísir greindi frá því að líkur væru á því að vöfflulykt færi að streyma úr Borgartúninu. Ríkissáttasemjari hafði boðað samningsaðila til fundar klukkan 15 í dag eftir að hafa leyft báðum aðilum að hvíla sig eftir vonbrigði síðasta föstudag. Þá samþykktu kennarar innanhússtillögu sáttasemjara en sveitarfélögin höfnuðu. Léttir á lokametrunum, samningur í höfn.Vísir/Vilhelm Með samningnum sem nú hefur verið undirritaður er öllum yfirstandandi og fyrirhuguðum vinnustöðvunum í skólum aflýst. Deilu sem staðið hefur í á fimmta mánuð er lokið með þeim fyrirvara að kennarar samþykki samninginn í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna. Formenn kennarafélagannan skrifa undir samningana.vísir/vilhelm Samningurinn er til fjögurra ára og hljóðar upp á 24,5 prósenta hækkun launa á samningstímanum. Nítján mánaða uppsagnarákvæði er í samningum en auk þess hefur verið samþykkt að koma á fót sérstakri forsendunefnd til að auka líkur á að samningurinn verði uppfylltur og minnka líkur á að honum verði sagt upp. Nefndin á að hjálpa til við að greiða úr deilum sem geta komið upp á samningstímanum. Ástráður ríkissáttasemjari gæðir sér á langþráði vöfflu.Vísir/Vilhelm Innáborgun til kennara hljóðar upp á átta prósent sem er sama hlutfall og var í innanhússtillögunni fyrir helgi að sögn Ingu Rúnar Ólafsdóttur, formanns samninganefndar sveitarfélaganna. Fimm mánaða deila Það var í október sem fyrstu atkvæðagreiðslur um verkfallsaðgerðir fóru fram. Boðað var til verkfalls í átta skólum sem virtust valdir af handahófi. Það hefur verið eitt af þeim atriðum sem farið hafa öfugt ofan í foreldra barna í þeim skólum þar sem verkföll hafa skollið á. Umboðsmaður barna komst að þeirri niðurstöðu að um mismunun væri að ræða. Inga Rún skrifar undir fyrir hönd samninganefndar sveitarfélaganna.Vísir/Vilhelm Í desember náðist samkomulag hjá sáttasemjara um að fresta verkfallsaðgerðum fram í byrjun febrúar. Góður gangur væri í viðræðum og líklegt að viðræður næstu vikurnar myndu leiða til samninga. Innanhússtillaga sáttasemjara í janúar hugaðist Sambandi íslenskra sveitarfélaga og ríkinu en ekki kennurum sem boðuðu aftur til verkfalls. Deilur kennara við sveitarfélögin rötuðu endurtekið fyrir dómstóla sem lauk með því á nýju ári að aðgerðirnar voru úrskurðaðar ólöglegar. Frá Karphúsinu í kvöld.Vísir/Vilhelm Fimm framhaldsskólar og einn tónlistarskóli fóru í verkfall fyrir helgi. Þá voru yfirvofandi verkföll í öllum leikskólum í Kópavogi og víðar. Ýmislegt benti til þess að samningar tækjust fyrir helgi. Kennara samþykktu innanhússtillögu sáttasemjara en stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hafnaði tilboðinu eftir tæplega sólarhrings umhugsunarfrest. Ríkið taldi ekki ástæðu til að svara tilboðinu og vísaði til þess að sveitarfélögin hefðu hafnað þeim. Rekstur leik- og grunnskóla er hjá sveitarfélögum en framhaldsskólar hjá ríkinu. Samningur í höfn átta tímum síðar Niðurstaðan á föstudag fór ekki vel í kennara sem stormuðu margir hverjir út úr skólum sínum á hádegi á föstudag. Þeir fjölmenntu á borgarstjórnarfund síðdegis á föstudag, hafa farið mikinn á samfélagsmiðlum með atvinnuleitargjörningi, kennarar í Garðabæ mótmæltu við bæjarskrifstofurnar í morgun og gjörningur var fyrirhugaður í Hafnarfirði á morgun þar sem jarðsetja átti kennarastarfið. Vöfflulyktin er alltaf kærkomin í Karphúsinu.Vísir/vilhelm Sáttasemjari boðaði deiluaðila á fund klukkan 15 í dag og nú átta tímum síðar er samningur í höfn. Vöfflulyktin streymir úr Karphúsinu og fólk ýmist féllst í faðma eða tókst í hendur í Borgartúninu í kvöld. Viðbrögð samningsaðila Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar sveitarfélaganna, sagði að lokinni undirritun að tillaga sveitarfélaganna um forsendunefnd hefði skipt sköpum. Um hana hefði náðst sátt. Nefndin á að taka á atriðum á samningstímanum sem geta komið upp og minnka líkurnar á því að samningnum verði sagt upp, sem kennarar geta gert eftir nítján mánuði. Ástráður ríkissáttasemjari fagnaði samningi en sagði mikla vinnu fyrir höndum. Deilluaðilar ætli í mikla sameiginlega vinnu, varðandi virðismat og ýmis önnur atriði sem ekki sé búið að fara yfir. Hann sagði vöffluna sína langþráða. Þá sagði Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands vera svakalega stoltur af kennurum í baráttunni. Hann minnti á að samningurinn væri aðeins áfangi, í raun upphafsreitur. Mikið verk væri fram undan að auka virðingu kennarastarfsins en vonandi myndu þessi tímamót hjálpa. Enn vantaði mikinn fjölda kennara til starfa. Þá væri hann mjög stoltur af því að kennarar á öllum stigum hefðu unnið að samningum saman í fyrsta skipti. Hér að neðan má svo sjá vaktina á Vísi. Mögulega þarf að hlaða síðuna upp aftur ef hún birtist ekki strax.
Kennaraverkfall 2024-25 Skóla- og menntamál Kjaramál Kjaraviðræður 2023-25 Leikskólar Grunnskólar Framhaldsskólar Tengdar fréttir Segir upp eftir rúma tvo áratugi í starfi: „Það virðist enginn hlusta“ Minnst sex grunnskólakennarar í Garðabæ hafa sagt starfi sínu lausu vegna stöðunnar í kjaradeilu kennara og fleiri hugsa sig um. Meðal þeirra sem hafa lagt fram uppsagnarbréf er Rakel Svansdóttir sem hefur unnið við Flataskóla í rúma tvo áratugi en hún segir starfið hafa tekið stakkaskiptum á tímabilinu. 25. febrúar 2025 19:53 Atburðir helgarinnar kjaftshögg fyrir kennara Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, segir að atburðarás kjaradeilunnar fyrir helgi hafi verið eins og kjaftshögg eða vatnsgusa í andlitið fyrir kennara. Hann segir kjaftæði að virðismatsvegferð kennara hafi áhrif á samninga á almennum vinnumarkaði, en hann vonar að hægt verði að klára samninga sem fyrst. 25. febrúar 2025 16:04 Buguðu foreldrarnir mæti þegar þeir sjá birta til Kennari sem hefur mikla reynslu af börnum með hegðunarvanda segir skort á fjármagni og fagfólki ástæðuna fyrir því að ekki sé unnið rétt með hópinn. Stokka þurfi kerfinu upp. Tvö sveitarfélög á öllu landinu bjóði upp á úrræði fyrir börn sem glími við slíkar áskoranir en biðlistinn sé langur. Kostnaður samfélagsins verði miklu meiri vegna brotinna einstaklingar útskrifast úr grunnskóla. 25. febrúar 2025 15:56 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira
Segir upp eftir rúma tvo áratugi í starfi: „Það virðist enginn hlusta“ Minnst sex grunnskólakennarar í Garðabæ hafa sagt starfi sínu lausu vegna stöðunnar í kjaradeilu kennara og fleiri hugsa sig um. Meðal þeirra sem hafa lagt fram uppsagnarbréf er Rakel Svansdóttir sem hefur unnið við Flataskóla í rúma tvo áratugi en hún segir starfið hafa tekið stakkaskiptum á tímabilinu. 25. febrúar 2025 19:53
Atburðir helgarinnar kjaftshögg fyrir kennara Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, segir að atburðarás kjaradeilunnar fyrir helgi hafi verið eins og kjaftshögg eða vatnsgusa í andlitið fyrir kennara. Hann segir kjaftæði að virðismatsvegferð kennara hafi áhrif á samninga á almennum vinnumarkaði, en hann vonar að hægt verði að klára samninga sem fyrst. 25. febrúar 2025 16:04
Buguðu foreldrarnir mæti þegar þeir sjá birta til Kennari sem hefur mikla reynslu af börnum með hegðunarvanda segir skort á fjármagni og fagfólki ástæðuna fyrir því að ekki sé unnið rétt með hópinn. Stokka þurfi kerfinu upp. Tvö sveitarfélög á öllu landinu bjóði upp á úrræði fyrir börn sem glími við slíkar áskoranir en biðlistinn sé langur. Kostnaður samfélagsins verði miklu meiri vegna brotinna einstaklingar útskrifast úr grunnskóla. 25. febrúar 2025 15:56