Öcalan vill leysa upp PKK Atli Ísleifsson skrifar 27. febrúar 2025 14:55 Fulltrúar stjórnmálaflokks Kúrda, DEM, lásu upp yfirlýsingu Öcalan á blaðamannafundi í Istanbúl í dag. AP Abdullah Öcalan, leiðtogi PKK, uppreisnarsamtaka Kúrda, vill að liðmenn þeirra leggi niður vopn og að samtökin verði leyst upp. Þetta kann að marka endalok átaka sem hafa staðið milli Kúrda og tyrkneskra stjórnvalda í um fjörutíu ár.
Liðsmenn PKK hafa um marga áratuga skeið háð vopnaða baráttu fyrir sjálfstæði Kúrda frá Tyrklandi. Erlendir fjölmiðlar greina frá því að tilkynningin um að Öcalan vilji binda endi á átökin hafi komið á blaðamannafundi með liðsmönnum DEM, stjórnmálaflokks Kúrda í Tyrklandi, í Istanbúl í dag. Sendinefnd með liðsmönnum DEM heimsóttu í dag Öcalan í fangelsið á eynni Imrali í Marmarasundi þar sem hann hefur setið í fangelsi frá árinu 1999. Í tilkynningu frá DEM kemur fram að Öcalan hafi hvatt leiðtoga PKK til að koma saman og leysa upp samtökin. Þar er haft eftir Öcalan að hann hvetji liðsmenn PKK til að leggja niður vopn. Hann beri ábyrgð á ákvörðuninni. Abdullah Öcalan hefur setið í fangelsið á eynni Imrali í Marmarasundi frá árinu 1999.AP PKK stendur fyrir Verkamannaflokkur Kúrda og var stofnað á áttunda áratugnum og hafði það að markmiði að koma á sjálfstæði Kúrda í Tyrklandi. Bæði stjórnvöld í Bandaríkjunum og Evrópusambandinu skilgreina PKK sem hryðjuverkasamtök. Rúmlega 40 þúsund manns hafa látið lífið í átökum uppreisnarsveita Kúrda og Tyrkja síðustu áratugi. Átökin stóðu hvað hæst á níunda og tíunda áratugnum. Gerðar hafa verið fjölda tilrauna til að koma á vopnahlé, en það síðasta rann út um þúfur árið 2015.
Tyrkland Hernaður Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira