Valur fær manninn sem var efstur á óskalistanum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. mars 2025 08:30 Marius Lundemo fagnar marki í leik með Lillestrøm. ntb/Christoffer Andersen Norski miðjumaðurinn Marius Lundemo hefur samið við Val og mun leika með liðinu í Bestu deild karla næstu tvö árin. Lundemo kom til móts við Valsmenn sem eru í æfingaferð á Marbella á Spáni.
Í fréttatilkynningu Valsmanna um félagaskiptin leynir það sér ekki að þeir eru ánægðir með að vera búnir að landa Lundemo. „Það er okkur mjög mikilvægt að fá inn leikmenn sem hafa unnið titla. Við höfum lagt mikið á okkur við að tryggja okkur krafta Lundemo, enda hefur hann lengi verið efstur á óskalista okkar þegar kemur að djúpum miðjumanni. Lundemo er klárlega leikmaður úr efstu hillu sem mun koma til með að styrkja hópinn okkar allverulega,“ sagði Björn Steinar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Vals. Lundemo lék síðast með Lillestrøm en það var í annað sinn sem hann var á mála hjá liðinu. Hann fór til þess frá uppeldisfélaginu Bærum 2014 og lék með Lillestrøm í tvö ár. Þaðan fór hann til stórliðsins Rosenborg þar sem hann varð tvisvar sinnum norskur meistari og einu sinni bikarmeistari. Lundemo, sem er þrítugur, samdi við APOEL á Kýpur 2020 og lék með liðinu í tvö ár áður en hann fór aftur til Lillestrøm. Valur hafnaði í 3. sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili. Liðið mætir Vestra á Hlíðarenda í 1. umferð Bestu deildarinnar sunnudaginn 6. apríl.
Besta deild karla Valur Mest lesið Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn John Cena hættur að glíma Sport „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Formúla 1 Hundrað ára vaxtarræktarkappi Sport Völsungar ráða ævintýramann sem þjálfara Sport Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Fleiri fréttir Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina Sjá meira