Tilkynna nafn nýfæddrar dóttur á umhverfisskilti í dag Orkusalan 11. mars 2025 13:10 „Við viljum endilega fá sem flestar kveðjur og gera þetta sögulegt! Þetta er einstakt tækifæri fyrir fólk til að taka þátt í að dreifa stuðinu með okkur,“ segir Helga Beck, markaðsstjóri Orkusölunnar. Margir hafa eflaust tekið eftir fjólubláum skilaboðum í morgunsárið sem innihéldu stuðkveðjur frá almenningi.
Stundum getur verið erfitt að vera í góðu stuði þegar neikvæðar fréttir af bæði innlendum og erlendum vettvangi dynja stöðugt á okkur. Orkusalan ætlar að reyna vinna bug á þeirri neikvæðu orku og koma Íslandi í stuð! Hvatningarkveðja frá þjálfaranum! „Við vorum fyrst raforkufyrirtækja til að bjóða viðskiptavinum okkar að velja sér orkuleið undir formerkjunum „Í hvað fer þín orka?“. Nú ætlum við að gefa íslensku þjóðinni færi á að nýta sína orku til að senda stuð út í samfélagið meðan við sjáum um að senda stuð inn á heimilin,“ segir Helga Beck, markaðsstjóri Orkusölunnar. Sendu fría stuðkveðju Öll sækjum við orku úr umhverfi okkar og í dag, þriðjudaginn 11. mars, mun Orkusalan vera með yfirtöku á flestum umhverfisskiltum og strætóskýlum í borginni þar sem þjóðinni er boðið að koma á framfæri jákvæðum og hvetjandi stuðkveðjum sem fylla munu almenningsrýmið af gleði. Minna tuð – meira stuð! Krúttleg kveðja í morgunsárið. „Það streyma inn skemmtilegar kveðjur, alveg ótrúlega gaman að fylgjast með þessu. Við höfum fengið frá vinnustöðum, bekkjum í grunnskóla og við vitum að par ætla að tilkynna nafn dóttur sinnar með Stuðkveðju í dag,“ segir Helga. Öllum stendur til boða að skrá sína stuðkveðju hér og mun hún birtast víðsvegar um borgina fyrir augum almennings. Hægt er að nýta tækifærið og senda persónulega kveðju á einhvern sem þér þykir vænt um eða bara senda almenna stuðkveðju til vegfarenda! Innsendingar er ókeypis og opnar öllum óháð viðskiptum við Orkusöluna. Fyrsta verkefni sinnar tegundar Verkefni sem þetta er einnig nýlunda fyrir þær sakir að í fyrsta sinn er verið að nýta tæknina til að gefa þjóðinni dagskrárvald yfir auglýsingaskiltum! Í samstarfi við Billboard og Púls media munu birtast kveðjur nánast jafnóðum og þær eru sendar inn, en hægt verður að senda inn kveðjur til klukkan 19 í dag. Skilaboðin munu birtast til miðnættis. Ekki er vitað til þess að sambærilegt verkefni hafi verið útfært á þessum skala. Falleg afmæliskveðja til bróðurs. „Við viljum endilega fá sem flestar kveðjur og gera þetta sögulegt! Þetta er einstakt tækifæri fyrir fólk til að taka þátt í að dreifa stuðinu með okkur. Það getur verið til að óska barninu þínu góðs gengis á leið í próf, segja þjóðinni frá því að mamma þín eldi besta lambalærið eða hvetja áfram þitt íþróttafélag. Kannski er einhver sem vill nýta þennan vettvang fyrir bónorð? Hver veit! Eitt er víst að við ætlum að vera í miklu stuði og vonumst til að þessar kveðjur dreifi því sem víðast,“ segir Helga og hlær.
Orkumál Mest lesið Samkeppnin í New York minnti á X-Factor keppni Menning Hrekkjavökubúningar sem er best að forðast Menning Stjörnurnar á hrekkjavökunni: Louvre-þjófur og vampírur Lífið Fréttatía vikunnar: Ríkislögreglustjóri, fellibylur og rasisti Lífið Láta forræðishyggju hinna fullorðnu ekki fipa sig Lífið Breytti um nafn eftir djúpa ástarsorg Tónlist Telur Sweeney hafa verið blekkta í kjólinn Tíska og hönnun Nýr skemmti- og spjallþáttur á Sýn Lífið Ískyggilega líkur ofurfyrirsætu: „Ég er með píku“ Lífið Atli Steinn fann ástina á ný Lífið Fleiri fréttir Vetrartískan er mætt í Boozt með kósýheit Nýir réttir Serrano aðgengilegir í LifeTrack appinu Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu „Við eigum meira blóð en blóðbankinn!“ Flytja alla Springsteen slagarana í Hörpu Frábær árangur í meðferðarstarfi Kalklitir og Slippfélagið mála framtíðina saman Hárolía, vinur eða óvinur hársins? Dineout gjafabréf er jólagjöfin í ár Hjálpa öðrum að eignast lítil kraftaverk Þarf alltaf að vera vín? Trúði varla eigin augum þegar hún sá fyrir og eftir myndirnar Úrval Útsýn hefur svarað kalli um björgunarfargjöld Þessi litla breyting breytti í raun öllu! Eldhúspartý KVIK er á laugardaginn Hug-A-Lums þyngdarbangsar sem allir elska The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Sjá meira