Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu SÝN 18. ágúst 2026 14:34 Helvítis kokkurinn mætti í heimsókn til Sjafnar Þórðar í lokaþætti sumarsins. Hann er þekktur fyrir að fara ótroðnar slóðir í eldhúsinu og bragðsterkur matur verður oft fyrir valinu. Myndir/Hallur Karlsson. Ívar Örn Hansen, betur þekktur sem Helvítis kokkurinn, er gestagrillari í nýjasta þættinum af Grillað með Sjöfn. Hann er þekktur fyrir að fara ótroðnar slóðir í eldhúsinu og bragðsterkur matur verður oft fyrir valinu. Eldpiparinn spilar þar stórt hlutverk og kitlar bragðlaukana. „
Ívar bauð mér upp á syndsamlega ljúffengan rækjukokteil þar sem hann fléttar saman fortíð og nútíð á einstaklega skemmtilegan hátt. Framsetningin hjá honum fangaði augað og þetta er forréttur sem gaman væri að bjóða upp á í næstu grillveislu.“ Hráefnið var litfagurt og kitlaði bragðlaukana. Ein flottasta steikin sem hægt er að bjóða gestum að njóta er án efa grilluð Tomahawk-ribeye. „Ívar fullkomnaði grillveisluna með þessari dýrindissteik og helvítis grillsósan er hreint sælgæti. Ómótstæðilega góð grillmáltíð og grillaða grænmetið toppaði matarupplifunina.“ Þáttinn og allar uppskriftirnar má finna hér fyrir neðan. Uppskriftirnar miðast við fjóra og allt hráefnið fæst í Krónunni. Í forrétt er Helvítis rækjukokteill og í aðalrétt er boðið upp á Helvítis Tomahawk-ribeye, Helvítis grillsósa og grillað grænmeti. Helvítis rækjukokteill í fæðingu. Forréttur: Helvítis rækjukokteill Grillspjót, eftir þörfum 500 g tígrisrækjur Börkur af heilli sítrónu 1 sítróna, skorin í báta 2 cm ferskur engifer 1 gulur cayenne pipar (Surtsey) 1 hvítlauksrif 200 g íssalat Rósasalat, frá VAXA 20 g sesamfræ Olía, eftir smekk salt, eftir smekk pipar, eftir smekk ½ stk. franskbrauð, til að bera fram grillað með réttinum Sósan að hætti Helvítis kokksins 100 g majónes 30 g Heinz chilli-sósa 15 g Worcestershire-sósa ½ límóna, safinn 10 g Cholula hot sauce Salt, eftir smekk Pipar, eftir smekk Aðferð: Setjið öll innihaldsefni fyrir sósuna í hæfilega stóra skál og hrærið vel saman. Smakkið til með salti og pipar og geymið í ísskáp fyrir notkun. Afþíðið rækjur, hellið öllum vökva frá og þerrið léttilega. Rífið engifer, sítrónubörk og hvítlauk yfir rækjurnar. Saxið eldpiparinn og bætið honum út íð rækjurnar. Leyfið rækjunum að marinerast í um það bil 2 klukkustundir. Þræðið rækjurnar upp á spjótin, hæfilegt er að setja fjórar á hvert spjót. Hitið grillið og látið það ná háum hita. Grillið síðan rækjurnar á háum hita þangað til að liturinn á rækjunum breytist úr gráum í bleikan. Þetta tekur ekki nema nokkrar mínútur, hlaupið því ekki neitt frá grillinu á meðan þið grillið rækjurnar. Saxið íssalatið í falleg kokteilaglös og skreytið með rósasalati og sítrónubátum. Takið rækjurnar af spjótunum og setjið ofan á salatið. Setjið nokkrar skeiðar af sósu ofan á og dreifið því næst sesamfræjum ofan á. Grillið brauðsneiðarnar, skerið þær síðan í tvennt, eins og þríhyrninga, og berið fram með Helvítis rækjukokteilnum. Best er að njóta með vel kældu hvítvíni eða freyðivíni. Kjötið kryddað áður en það fer á grillið. Aðalréttur: Helvítis Tomahawk-ribeye og meðlæti Helvítis grillsósan: 150 g majónes 75 g sýrður rjómi 10-30 g Helvítis eldpiparsultan Surtsey og ananas 10 g steinselja, söxuð Salt, eftir smekk Pipar, eftir smekk Vígaleg steikin komin á grillið. Aðferð: Blandið öllum hráefnunum saman í skál og hrærið vel saman. Geymið í ísskáp fyrir notkun. Helvítis Tomahawk-ribeye 1 stór Tomahawk-ribeye Helvítis steikarsaltið (þurrkað söl 10%, Sumac 10%, flögusalt 80%) 1 pk forsoðinn maís (4 stk. í pakkningu í Krónunni) 100 g smjör 1 parmigiano reggiano 1 gulur squash, skorinn í sneiðar ½ ananas, skorinn í sneiðar Piknikk-tómatar á grein 1 rauðlaukur, afhýddur og skorinn í sneiðar 1 appelsínugul paprika, kjarnhreinsuð og skorin í bita 1 toppkálshaus, skorinn í 6 bita og kjarnhreinsaður 6 plómur, skornar í helminga og kjarnhreinsaðar 1 mozzarellakúla 10 g ferskt kóríander frá VAXA, saxað olía frá Olifa eftir smekk salt, eftir smekk pipar, eftir smekk Helvítis beikon og brennivínskryddsultan Litfagurt grænmetið lítur vel út. Aðferð: Saltið steikina með Helvítis steikarsaltinu og geymið við stofuhita í 2–3 klukkutíma. Hitið grillið upp í háan hita, minnst 300 °C, alveg upp í 400 °C ef hægt er. Grillið steikina á meðalháum hita þangað til kjöthitamælirinn sýnir 54 °C kjarnhita. Setjið þá steikina til hliðar og leyfið henni að hvíla á meðan meðlætið er grillað eða í um það bil 15 mínútur, því lengur því betra. Baðið allt grænmetið nema maísinn upp úr olíu og grillið á háum hita. Munið að nota salt og pipar í hæfilegu magni á meðan þið grillið. Toppkálið tekur mestan tíma þannig að gott er að byrja á því. Skerið toppkálið í minni bita eftir eldun. Hrikalega girnilegur aðalréttur. Penslið maísinn með smjöri og grillið, kryddið með salti og pipar. Dreifið fersku kóríander yfir áður en þið berið maísinn fram. Skerið steikina í smekklegar sneiðar og berið allt fram á stóru trébretti eða steikarfati ásamt Helvítis grillsósunni og Helvítis beikon- og brennivínskryddsultunni. Skálað fyrir góðri máltíð. Njótið með góðu rauðvíni eða því sem ykkur finnst best.
Grillað með Sjöfn Grillréttir Matur Uppskriftir Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Fleiri fréttir „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Stóra stærðfræðikeppnin hafin í grunnskólum landsins Minna plast og meiri tenging við upprunann hjá Nándinni í Firði Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur „Hörður Grímsson er orðinn lúxusvandamál“ Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Hræðilegir dagar í Partylandi Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Sjá meira