Red Bull búið að gefast upp á Lawson Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. mars 2025 12:31 Forráðamenn Red Bull höfðu ekki mikla þolinmæði fyrir Liam Lawson. getty/Kym Illman Þrátt fyrir að aðeins tveimur keppnum sé lokið á tímabilinu í Formúlu 1 bendir allt til þess að Red Bull ætli að skipta öðrum ökumanni sínum út.
Samkvæmt heimildum BBC hafa forráðamenn Red Bull ákveðið að skipta Liam Lawson út fyrir Yuki Tsunoda fyrir næstu keppni sem er í Japan um þarnæstu helgi. Hinn ökumaður Red Bull er heimsmeistarinn Max Verstappen. Lawson lauk ekki keppni í fyrsta kappakstri tímabilsins, í Ástralíu, en endaði í 12. sæti í Kína um síðustu helgi. Lawson og Tsunoda munu hafa sætaskipti. Lawson fer til systurliðsins Racing Bulls á meðan Tsunoda keppir fyrir Red Bull. Næsta keppni verður í hans heimalandi, Japan. Nýsjálendingurinn Lawson var fenginn til að keppa við hlið Verstappens eftir að Red Bull lét Mexíkóann Sergio Pérez fara, þrátt fyrir að hann ætti tvö ár eftir af samningi sínum við liðið. Tsunoda endaði í 12. sæti í Ástralíukappakstrinum og því sextánda í kínverska kappakstrinum um síðustu helgi. Besti árangur hans er 4. sæti í kappakstrinum í Abú Dabí 2021. Á síðasta tímabili fékk hann þrjátíu stig og endaði í 12. sæti í keppni ökuþóra.
Akstursíþróttir Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Körfubolti Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Ellefu ára strákur verður óvænt hluti af setningarhátíð Ólympíuleikanna Sport Sara var lengi lásskjámynd Eyglóar en nú er Eygló á símanum hjá Söru Sport Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira