Gleðifréttir fyrir Ísland: Glódís spilaði fyrir landsleikina mikilvægu Sindri Sverrisson skrifar 30. mars 2025 15:16 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir, liðsfélagar og lykilmenn í íslenska landsliðinu, mættust í Þýskalandi í dag. Getty/Alex Nicodim Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins og Bayern München, ætti að geta tekið þátt í leikjunum mikilvægu við Noreg og Sviss í Þjóðadeildinni í fótbolta eftir að hafa spilað í toppslag við Leverkusen í dag.
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari varaði við því þegar hann valdi landsliðshóp sinn að aðeins helmingslíkur væru á að Glódís yrði með í leikjunum, sem eru næsta föstudag og svo þriðjudaginn 8. apríl. Glódís var hins vegar með gegn Leverkusen í dag, eftir að hafa ekki getað spilað að undanförnu vegna hnémeiðsla, og virtist ekki kenna sér meins þegar hún skokkaði af velli á 82. mínútu. Þá var staðan þegar orðin 2-0 sem urðu lokatölur leiksins. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var í byrjunarliði Leverkusen en var skipt af velli á 66. mínútu, skömmu áður en Lea Schüller skoraði seinna mark Bayern. Klara Bühl hafði gert fyrra markið á 56. mínútu. Bayern er því með sex stiga forskot á Frankfurt á toppi deildarinnar, þegar aðeins fjórir leikir eru eftir, og virðist ætla að verja meistaratitil sinn. Leverkusen er með 36 stig í 4. sæti, nú elleftu stigum á eftir Bayern. Hlín mætti Tottenham en Telma þarf að bíða áfram Hlín Eiríksdóttir kom inn á sem varamaður hjá Leicester á 72. mínútu, í 1-1 jafntefli við Tottenham. Leicester er með 16 stig í 10. sæti deildarinnar, sjö stigum fyrir ofan botnlið Crystal Palace, en Tottenham er með 18 stig í 9. sæti. Í skosku úrvalsdeildinni var Telma Ívarsdóttir ekki í leikmannahópi Rangers sem vann 4-0 sigur á Hearts. Hún bíður því áfram eftir sínu fyrsta tækifæri í deildinni eftir komuna frá Breiðabliki í janúar. Hlín, Telma, Karólína og Glódís eiga allar sæti í íslenska landsliðshópnum sem á fyrir höndum mikilvæga leiki við Noreg og Sviss á Þróttarvelli í Þjóðadeildinni, næsta föstudag og þriðjudaginn 8. apríl.
Skoski boltinn Þýski boltinn Enski boltinn Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Albert og félagar trufluðu topplið Inter Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Íslenski boltinn Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Fleiri fréttir Vinicius hetjan eftir rautt spjald og líflegan grannaslag Albert og félagar trufluðu topplið Inter Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Sjá meira