Gylfa aftur spáð titlinum en spáin röng síðan 2020 Sindri Sverrisson skrifar 2. apríl 2025 16:01 Gylfi Þór Sigurðsson landaði ekki sínum fyrsta bikar í fyrra, eins og spáð var, en er aftur spáð Íslansdmeistaratitli í ár. vísir/Hulda Margrét Keppinautar Víkings geta huggað sig við það að árleg spá fyrirliða, þjálfara og formanna félaganna, um verðandi Íslandsmeistara, hefur ekki gengið eftir síðustu ár. Víkingum er spáð sigri í Bestu deild karla í fótbolta í haust en leiktíðin hefst núna um helgina. Þetta er annað árið í röð þar sem að liði Gylfa Þórs Sigurðssonar er spáð titlinum því Valsmönnum var spáð sigri fyrir ári síðan. Það fór þó svo að Valur endaði í 3. sæti og Breiðablik, sem nú er spáð 2. sæti, stóð uppi sem Íslandsmeistari. Spáin fyrir 2024: Valur Víkingur Breiðablik Stjarnan KR FH KA Fram ÍA Fylkir Vestri HK Lokastaðan 2024: Breiðablik (+2 sæti) Víkingur (rétt) Valur (-2) Stjarnan (rétt) ÍA (+4) FH (rétt) KA (rétt) KR (-3) Fram (-1) Vestri (+1) HK (+1) Fylkir (-2) Það hefur raunar ekki gerst síðan árið 2020 að leikmenn, þjálfarar og formenn félaganna í deildinni spái rétt fyrir um Íslandsmeistara, þegar þeir spáðu Valsmönnum titlinum eins og raunin varð. Eftir það var Breiðabliki og Víkingi til skiptis spáð titlinum en unnu hann aldrei þegar þeim var spáð honum. Breiðabliki var spáð titlinum 2023 en þá vann Víkingur. Víkingi var spáð titlinum 2022 en þá vann Breiðablik. Árið 2021 var svo Breiðabliki spáð titlinum en Víkingur vann. Besta deild karla Mest lesið Gott silfur gulli betra en hvað nú? Enski boltinn Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Fótbolti „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Enski boltinn Kærastinn kemur til varnar: „Allir glíma við sín vandamál“ Sport Dagskráin í dag: Bikar- og Íslandsmeistararnir mætast Sport „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ Íslenski boltinn Þvælu að starf Ole Gunnar sé í hættu Fótbolti Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Enski boltinn Hato mættur á Brúnna Enski boltinn Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Enski boltinn Fleiri fréttir Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: FH - Víkingur 2-2 | Forza ragazzi! Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Selvén aftur í Vestra „Sætt að þetta gerðist á 91. mínútu“ KR sækir Arnar Frey af bekknum hjá HK Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 3-2 | Blikar í úrslit eftir ótrúlega endurkomu „Nákvæmlega það sem ég hef verið að sjá fyrir mér“ KSÍ sektar Árbæ um 250 þúsund krónur ÍR aftur á toppinn Hin efnilega Rebekka Sif til Nordsjælland frá Gróttu Sunna Rún til liðs við Íslandsmeistarana Uppbótartíminn: Hvernig lið er Stjarnan? „Ætlum að fara þarna og sækja þennan bikar“ Njarðvík á toppinn Sjá meira
Víkingum er spáð sigri í Bestu deild karla í fótbolta í haust en leiktíðin hefst núna um helgina. Þetta er annað árið í röð þar sem að liði Gylfa Þórs Sigurðssonar er spáð titlinum því Valsmönnum var spáð sigri fyrir ári síðan. Það fór þó svo að Valur endaði í 3. sæti og Breiðablik, sem nú er spáð 2. sæti, stóð uppi sem Íslandsmeistari. Spáin fyrir 2024: Valur Víkingur Breiðablik Stjarnan KR FH KA Fram ÍA Fylkir Vestri HK Lokastaðan 2024: Breiðablik (+2 sæti) Víkingur (rétt) Valur (-2) Stjarnan (rétt) ÍA (+4) FH (rétt) KA (rétt) KR (-3) Fram (-1) Vestri (+1) HK (+1) Fylkir (-2) Það hefur raunar ekki gerst síðan árið 2020 að leikmenn, þjálfarar og formenn félaganna í deildinni spái rétt fyrir um Íslandsmeistara, þegar þeir spáðu Valsmönnum titlinum eins og raunin varð. Eftir það var Breiðabliki og Víkingi til skiptis spáð titlinum en unnu hann aldrei þegar þeim var spáð honum. Breiðabliki var spáð titlinum 2023 en þá vann Víkingur. Víkingi var spáð titlinum 2022 en þá vann Breiðablik. Árið 2021 var svo Breiðabliki spáð titlinum en Víkingur vann.
Spáin fyrir 2024: Valur Víkingur Breiðablik Stjarnan KR FH KA Fram ÍA Fylkir Vestri HK Lokastaðan 2024: Breiðablik (+2 sæti) Víkingur (rétt) Valur (-2) Stjarnan (rétt) ÍA (+4) FH (rétt) KA (rétt) KR (-3) Fram (-1) Vestri (+1) HK (+1) Fylkir (-2)
Besta deild karla Mest lesið Gott silfur gulli betra en hvað nú? Enski boltinn Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Fótbolti „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Enski boltinn Kærastinn kemur til varnar: „Allir glíma við sín vandamál“ Sport Dagskráin í dag: Bikar- og Íslandsmeistararnir mætast Sport „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ Íslenski boltinn Þvælu að starf Ole Gunnar sé í hættu Fótbolti Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Enski boltinn Hato mættur á Brúnna Enski boltinn Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Enski boltinn Fleiri fréttir Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: FH - Víkingur 2-2 | Forza ragazzi! Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Selvén aftur í Vestra „Sætt að þetta gerðist á 91. mínútu“ KR sækir Arnar Frey af bekknum hjá HK Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 3-2 | Blikar í úrslit eftir ótrúlega endurkomu „Nákvæmlega það sem ég hef verið að sjá fyrir mér“ KSÍ sektar Árbæ um 250 þúsund krónur ÍR aftur á toppinn Hin efnilega Rebekka Sif til Nordsjælland frá Gróttu Sunna Rún til liðs við Íslandsmeistarana Uppbótartíminn: Hvernig lið er Stjarnan? „Ætlum að fara þarna og sækja þennan bikar“ Njarðvík á toppinn Sjá meira