Versta úrslitakeppnin í sögu Reykjanesbæjarliðanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2025 11:01 Dominykas Milka og félagar í Njarðvík eru komnir í sumarfrí eftir tap á Álftanesi í leik fjögur. Vísir/Hulda Margrét Keflavík og Njarðvík eru bæði úr leik í úrslitakeppni Bónus deildar karla í körfubolta og tölfræðilega er þetta slakasta frammistaða þeirra til samans í meira en fjörutíu ára sögu úrslitakeppninnar. Tindastóll sópaði Keflvíkingum í sumarfrí 3-0 og Njarðvíkingar töpuðu 3-1 á móti Álftanesi en fjórði leikurinn fór fram í gærkvöldi. Í fyrsta sinn í sex ár vinnur því hvorugt Reykjanesbæjarliðið einvígi í úrslitakeppninni en það gerðist síðast 2019. Þetta er 41. úrslitakeppnin frá upphafi (byrjaði 1984) og í aðeins fimm þeirra (2012, 2013, 2018, 2019, 2025) hefur hvorki Keflavík né Njarðvík náð að vinna einvígi. Reykjanesbæjarliðin unnu aðeins einn af sjö leikjum sínum í úrslitakeppninni í ár og það gerir bara fjórtán prósent sigurhlutfall. Þetta er versta samanlagt sigurhlutfall Keflavíkur og Njarðvíkur í einni úrslitakeppni í fjögurra áratuga sögu úrslitakeppninnar. Það fylgir þó sögunni að kvennalið félaganna eru heldur betur að halda uppi nafni sina félaga í úrslitakeppninni í ár enda bæði komin alla leið í undanúrslitin í Bónus deild kvenna. Keflavík vann Tindastól 3-0 og Njarðvík vann 3-0 sigur á Stjörnunni. Kvennaliðin eru því enn ósigruð í úrslitakeppninni í ár.
Tindastóll sópaði Keflvíkingum í sumarfrí 3-0 og Njarðvíkingar töpuðu 3-1 á móti Álftanesi en fjórði leikurinn fór fram í gærkvöldi. Í fyrsta sinn í sex ár vinnur því hvorugt Reykjanesbæjarliðið einvígi í úrslitakeppninni en það gerðist síðast 2019. Þetta er 41. úrslitakeppnin frá upphafi (byrjaði 1984) og í aðeins fimm þeirra (2012, 2013, 2018, 2019, 2025) hefur hvorki Keflavík né Njarðvík náð að vinna einvígi. Reykjanesbæjarliðin unnu aðeins einn af sjö leikjum sínum í úrslitakeppninni í ár og það gerir bara fjórtán prósent sigurhlutfall. Þetta er versta samanlagt sigurhlutfall Keflavíkur og Njarðvíkur í einni úrslitakeppni í fjögurra áratuga sögu úrslitakeppninnar. Það fylgir þó sögunni að kvennalið félaganna eru heldur betur að halda uppi nafni sina félaga í úrslitakeppninni í ár enda bæði komin alla leið í undanúrslitin í Bónus deild kvenna. Keflavík vann Tindastól 3-0 og Njarðvík vann 3-0 sigur á Stjörnunni. Kvennaliðin eru því enn ósigruð í úrslitakeppninni í ár. Verstu úrslitakeppnirnar í sögu Reykjanesbæjar (Keflavík+Njarðvík) 14% sigurhlufall - 2025 (1 sigur - 6 töp) 20% - 2012 (1-4) 25% - 2019 (2-6) 25% - 2018 (2-6) 33% - 2013 (2-4) 40% - 2009 (2-5) - Reykjanesbæjarliðin í síðustu tíu úrslitakeppnum 2025: 1 sigur - 6 töp (14% sigurhlutfall) 2024: 10 sigrar - -9 töp (53%) 2023: 5 sigrar - 6 töp (45%) 2022: 6 sigrar - 6 töp (50%) 2021: 7 sigrar - - 3 töp (70%) 2019: 2 sigrar - 6 töp (25%) 2018: 2 sigrar - 6 töp (25%) 2017: 4 sigrar - 4 töp (50%) 2016: 6 sigrar - 8 töp (43%) 2015: 7 sigrar - 8 töp (47%)
Verstu úrslitakeppnirnar í sögu Reykjanesbæjar (Keflavík+Njarðvík) 14% sigurhlufall - 2025 (1 sigur - 6 töp) 20% - 2012 (1-4) 25% - 2019 (2-6) 25% - 2018 (2-6) 33% - 2013 (2-4) 40% - 2009 (2-5) - Reykjanesbæjarliðin í síðustu tíu úrslitakeppnum 2025: 1 sigur - 6 töp (14% sigurhlutfall) 2024: 10 sigrar - -9 töp (53%) 2023: 5 sigrar - 6 töp (45%) 2022: 6 sigrar - 6 töp (50%) 2021: 7 sigrar - - 3 töp (70%) 2019: 2 sigrar - 6 töp (25%) 2018: 2 sigrar - 6 töp (25%) 2017: 4 sigrar - 4 töp (50%) 2016: 6 sigrar - 8 töp (43%) 2015: 7 sigrar - 8 töp (47%)
Bónus-deild karla Keflavík ÍF UMF Njarðvík Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Enski boltinn „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ Körfubolti Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Handbolti Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Fleiri fréttir „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ „Þá er þetta munurinn á liðunum“ Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 74-99 | Grindavík eltir Keflavík í úrslit Martin með ellefu stig í magnaðri endurkomu Alba Berlin Uppgjörið: Keflavík - Hamar/Þór 82-77 | Keflvíkingar í bikarúrslit Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið „Við þekkjum umhverfið allavega betur“ James Harden skipt til Cleveland og titillíkur Cavaliers aukast „Vitum hvernig Stjarnan spilar“ Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik KR - Tindastóll 85-87 | KR-ingar í úrslit eftir háspennu „Byrjunin verður gríðarlega mikilvæg“ „Þeir setja pressu á alla og gera allt óþægilegt“ KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Stólarnir fóru bara allir í fýlu saman og það er óafsakanlegt Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Martin fagnaði mikilvægum sigri eftir mistök toppliðsins LeBron James valinn í Stjörnuleikinn 22. árið í röð Finni á Krókinn og Þór skiptir um Kana Efins um Pargo-skiptin: „Held að þetta sé ekki rétt hjá þeim“ Ekkert lát á sigurgöngu Tryggva og félaga Paul George dæmdur í 25 leikja bann Sparkaði í og trampaði á mótherja Pargo snýr aftur og klárar tímabilið með Grindavík Uppgjörið: Þór Þ - Keflavík 78 - 98 | Keflavíkurhraðlestin brunaði heim með öll stigin Shabazz látinn fara frá Grindavík Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 125-87 | Meistararnir völtuðu yfir Stólana „Þetta gefur mér vonir um að við getum barist um þetta“ Uppgjörið: Njarðvík - Álftanes 101-96| Gríðarlega mikilvægur sigur fyrir heimamenn Sjá meira