Rekstur Reykjanesbæjar fram úr vonum vegna hærri útsvarstekna Kjartan Kjartansson skrifar 7. maí 2025 10:13 Afgangur af rekstri Reykjanesbæjar var mun meiri en lagt var upp með í áætlun fyrir árið 2024. Vísir/Vilhelm Umtalsvert hærri útsvarstekjur eru sagðar ástæða þess að rekstrarniðurstaða Reykjanesbæjar í fyrra var töluvert betri en reiknað var með. Rúmlega 1,1 milljarðs króna afgangur varð af rekstri bæjarsjóðs í fyrra.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti ársreikning fyrir árið 2024 í gær. Rekstrarniðurstaða A-hluta bæjarsjóðs var jákvæð um 1.113 milljónir króna og samstæðunnar um 2.577 milljónir. Upphaflega var gert ráð fyrir að afgangur af rekstri bæjarsjóðs yrði 149 milljónir króna, hátt í milljarð króna lakari afkoma en raunin varð. Í tilkynningu frá Reykjanesbæ er þetta rakið til umtalsvert hærri útsvarstekna en reiknað var með. Alls námu tekjur A-hluta bæjarsjóðs 27,8 milljörðum króna en gjöldin 25 milljörðum. Veltufé á rekstri er sagt hafa verið notað í innviðauppbyggingu vegna mikillar fjölgunar íbúa undanfarin ár og í viðhaldsverkefni á skólahúsnæði og öðru opinberu húsnæði vegna rakaskemmda sem er lýst sem krefjandi. Skuldaviðmið A-hluta bæjarsjóðs var 97,75 prósent og samstæðunnar 105,6 prósent. Skuldir bæjarins á hvern íbúa námu 1,4 milljónum króna.
Reykjanesbær Sveitarstjórnarmál Mest lesið „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Valgarð Már er látinn Innlent Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Erlent Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Fleiri fréttir „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Sjá meira