Skoðun

Uppi­skroppa með um­ræðu­efni í málþófi? Talið um Gaza!

Viðar Eggertsson skrifar

Það er hreint hjákátlegt að fylgjast með stjórnarandstöðunni ólmast í málþófi til að hindra framgang mála á Alþingi - jafnvel mál sem þau eru í raun hjartanlega sammála. Allt vegna þess að þau eru ekki sjálf í ríkisstjórn.

Málþófinu er ætlað að tefja eins og mögulegt er þau mál sem þau vildu í raun koma sjálf í gegn þegar þau voru í ríkisstjórn, en skorti verksvit og vilja til að hrinda í framkvæmd. Við sátum uppi með kyrrstöðustjórn síðustu sjö ár. Nú hafa þau ekkert annað til málanna að leggja nema lýsingar á hversu óhöndlega þeim gengur með tappa á plastflöskum. Verkefni sem sérhvert leikskólabarn hefur náð góðum tökum á.

Það er sorglegt að á þessum alvarlegu tímum sem við lifum nú dettur engum í stjórnarandstöðunni í hug að vekja athygli á alvöru málum samtímans. Nei, tappar á plastflöskum og slíkur hégómi á hug þeirra allan til að stíga í ræðustól Alþingis og belgja sig út af hneykslan vegna þess fyrirbæris. Stóru málin hvað?

Meðan þau ræða vandræði sín við tappana til að tefja mál sem þau eru sammála um er verið að fremja þjóðarmorð á Gaza. Þeim dettur ekki í hug að ræða það í ræðustól Alþingis að zíonistar í Ísrael eru að þverbrjóta alþjóðalög. Meira en 50.000 manns hefur verið drepinn og 120.000 særðir og limlestir. Skipulagðar árásir á sjúkrastofnanir, lækna og hjálparstarfsmenn. Hungrað fólk í leit að mat skotið á færi. Hungri beitt sem hernaðaraðgerð og öllum neyðarvistum haldið í herkví til að svelta heila þjóð til bana.

Um þetta þegir stjórnarandstaðan skerandi þunnu hljóði þó hún sé að verða uppiskroppa um mál til að ræða í málþófinu.

Það vekur athygli að á sama tíma hafa iðulega kvatt sér hljóðs á Alþingi síðustu vikur stjórnarþingmenn til að fordæma þjóðarmorðið: Dagbjört Hákonardóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Ása Berglind Hjálmarsdóttir úr Samfylkingunni og Sigmar Guðmundsson úr Viðreisn.

Stjórnarandstöðuþingmenn: Nú er lag. Talið um það sem skiptir máli. Talið um Gaza!

Hvet alla sem vettlingi geta valdið til að taka þátt í samstöðugöngunni með Palestínu sem leggur af stað frá Bandaríska sendiráðinu í dag og endar með útifundi á Austurvelli – líka stjórnarandstöðuþingmenn!

Höfundur er leikstjóri og öldungur




Skoðun

Sjá meira


×