Innlent

Staðan í hag­kerfinu og alþjóðamálin

Jón Þór Stefánsson skrifar
Sprengisandur hefst klukkan 10. Kristján Kristjánsson stýrir þættinum að venju.
Sprengisandur hefst klukkan 10. Kristján Kristjánsson stýrir þættinum að venju. Vísir

Sprengisandur er á sínum stað klukkan tíu þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti.

Már Wolfgang Mixa dósent í fjármálum við HÍ ræðir stöðuna í hagkerfinu, vaxtaákv. stendur fyrir dyrum í vikunni og ólíklegt að vextir lækki í bili.

Haraldur Þór Jónsson oddviti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, ræða nýja stefnu veiðifélags Þjórsár sem undir forystu Haraldar mælir nú kröftuglega fyrir nýjum virkjunum í Þjórsá og telur það laxastofninum í ánni í hag.

Dagbjört Hákonardóttir, alþingismaður, hefur beitt sér fyrir stuðningi Íslands við Palestínu og stutt aðgerðir forsætisráðherra á alþjóðavettvangi þar sem Ísland er nú í forystu ríkja sem skora á Ísrael að breyta stefnu sinni á Gasa. Dagbjört ræðir næstu skref í málinu af hálfu Íslendinga.

Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor á Akureyri, ræðir stöðuna í Úkraínu og víðar - viðræður deiluaðila í Tyrklandi skiluðu litlu, Evrópuleiðtogar hnykla vöðvana og Trump lofar símtali við Pútín strax á morgun - er eitthvað að þokast í rétta átt?

s



Fleiri fréttir

Sjá meira


×