Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. maí 2025 13:41 Grímur dúx tekur við blómum úr hendi Kolfinnu skólameistara. Kvennó Mikil gleði ríkti í Háskólabíó síðastliðinn föstudag þegar 209 nýstúdentar voru brautskráðir frá Kvennaskólanum við hátíðlega athöfn. Dúx skólans var Grímur Gunnhildarson Einarsson með einkunnina 9,69 en þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem dúx kemur af félagsvísindabraut.
Kolfinna Jóhannesdóttir skólameistari stýrði athöfninni og nýstúdentar sáu um öll þrjú tónlistaratriðin. Aþena Rós Sigurjónsdóttir spilaði einleik á píanó. Þá spiluðu Iðunn Gunnsteinsdóttir (píanó) Dagný Ósk Stefánsdóttir (þverflauta) og Esja Sveinbjörnsdóttir (klarinett) saman og loks spilaði hljómsveitin 5k fyrir gesti. Tónlistaratriðin slógu í gegn.Kvennó Hljómsveitina skipa Freydís Klara Halldórsdóttir (söngur), Logi Hjörvarsson (trommur), Guðrún Lilja Dagbjartsdóttir (hljómborð), Anna Birna Ingadóttir (rafmagnsgítar) og Leela Lynn Arni Stefánsdóttir (bassi). Kveður eftir fjörutíu ára starf Skólameistari flutti ávarp þar sem hún minnti gesti á framlag menntunar til umbreytinga. „Við lifum á tímum tæknibyltinga, gervigreindar og margvíslegra framfara á sviði vísinda, við lifum einnig á tímum hnattrænna áskorana, óvissu og það eru stríð út í heimi. Framlag okkar til umbreytinga í átt að betri framtíð byggist á fjölþættri hæfni sem inniber þekkingu og færni sem við höfum aflað okkur og þau gildi og viðhorf sem við stöndum fyrir og hafa áhrif á ákvarðanir okkar.“ Flottum árangri fagnað.Kvennó Ávarp nýstúdents flutti Logi Hjörvarsson, fráfarandi forseti Keðjunnar sem er nemendafélag Kvennaskólans. Heiðursávarp flutti Kristín Marín Siggeirsdóttir, líffræðikennari, sem lætur af störfum í sumar eftir að hafa starfað í 40 ár sem framhaldsskólakennari, þar af 38 ár við Kvennaskólann. Ásdís Arnalds, aðstoðarskólameistari beindi orðum sínum til nýstúdenta og sagðist vona að „góð samskipti og góð samvinna sé veganesti sem þið hafið fengið í Kvennó og ræktið áfram. Það er sennilega fátt mikilvægara í heimi fjölmenningar, gervigreindar, hraðrar þróunar og margvíslegra átaka í heiminum en einmitt þessir þættir, góð samskipti og góð samvinna.“ Kolfinna skólameistari segir hefð fyrir því að veita viðurkenningar fyrir námsárangur. Það var klappað og klappað og klappað fyrir flottum Kvenskælingum.Kvennó „Við sem störfum í skólakerfinu vitum hins vegar að einkunnir á blaði geta aldrei útskýrt alla þá sigra sem margir nemendur í hópnum hafa sannarlega unnið á skólagöngu sinni. Persónulegu sigrarnir eru margir og við fögnum þeim innilega með hverju og einu þeirra.“ Dúx skólans var Grímur Gunnhildarson Einarsson með einkunnina 9,69. Hann hlaut að launum verðlaun úr Minningarsjóði frú Þóru Melsteð og eins var hann verðlaunaður fyrir glæsilegan árangur í félagsfræði. Semidúx skólans var Iðunn Gunnsteinsdóttir með einkunnina 9,64 en hún hlaut einnig verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í stærðfræði. Stoltir foreldrar á leið til athafnar.Kvennó Jakob Felix Pálsson Little hlaut Stúdentspennann fyrir besta lokaverkefni skólaársins úr verðlaunasjóði dr. Guðrúnar P. Helgadóttur. Eyrún Una Arnarsdóttir fékk Menntaverðlaun Háskóla Íslands sem eru veitt nemanda sem hefur sýnt framúrskarandi árangur á stúdentsprófi auk þess að hafa náð eftirtektarverðum árangri á sviði lista eða íþrótta eða átt mikilvægt framlag til skólafélaga eða skólans. Allir með húfur sem settar voru upp á stóra sviðinu.Kvennó Ólafur Þór Helgason fékk verðlaun Háskólans í Reykjavík sem eru veitt nemanda sem sannað hefur getu sína í raungreinum bæði með vali á krefjandi 3ja þreps námskeiðum og með framúrskarandi árangri. Ólafur Þór lauk 105 einingum í raungreinum og stærðfræði á námsferlinum með ágætiseinkunn í þeim öllum Aðrar viðurkenningar fyrir afburðagóðan námsárangur fengu Karitas Líf Ríkharðsdóttir, Sólveig Þórmundsdóttir, Hálfdán Aron Hilmarsson, Austéja Rekeltaité, Hekla Kristrún Mist Arnarsdóttir, Kristbjörg María Kjartansdóttir, Aðalheiður Ella Ásmundsdóttir, Eva María Tómasdóttir, Hilmar Andri Lárusson, Andrea Diljá Jóhannesdóttir Bachmann og Katrín Jana Guðbjörnsdóttir. Tveir flottir Kvennskælingar.Kvennó Viðurkenningu fyrir þátttöku í stjórn nemendafélagsins Keðjunnar fengu Logi Hjörvarsson, Daníela Hjördís Magnúsdóttir, Marta Björg Björnsdóttir, Eva Harðardóttir, Eyrún Una Arnarsdóttir, Óttar Örn Bergmann, Áskell Einar Pálmason og Karólína Huld Lárusdóttir.
Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Tímamót Dúxar Tengdar fréttir Dúxinn fjarri góðu gamni Dúx Flensborgarskólans í Hafnarfirði þetta árið var ekki viðstaddur brautskráningarathöfnina vegna þess að hann er þessa stundina staddur úti í Andorra þar sem hann etur kappi á Smáþjóðaleikunum í sundi fyrir Íslands hönd. 24. maí 2025 19:01 Þrjár erlendar stúlkur með hæstu einkunn í FÁ Ngan Kieu Tran, Dana Zaher og Diana Al Barouki útskrifuðust úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla í gær og fengu verðlaun fyrir góðan námsárangur. Þær eiga það allar sameiginlegt að hafa flutt til Íslands árið 2022 og hafa tileinkað sér íslenskuna á mettíma. 24. maí 2025 11:35 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira
Dúxinn fjarri góðu gamni Dúx Flensborgarskólans í Hafnarfirði þetta árið var ekki viðstaddur brautskráningarathöfnina vegna þess að hann er þessa stundina staddur úti í Andorra þar sem hann etur kappi á Smáþjóðaleikunum í sundi fyrir Íslands hönd. 24. maí 2025 19:01
Þrjár erlendar stúlkur með hæstu einkunn í FÁ Ngan Kieu Tran, Dana Zaher og Diana Al Barouki útskrifuðust úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla í gær og fengu verðlaun fyrir góðan námsárangur. Þær eiga það allar sameiginlegt að hafa flutt til Íslands árið 2022 og hafa tileinkað sér íslenskuna á mettíma. 24. maí 2025 11:35