Ummæli Davíðs Smára ekki á borði aganefndar Sindri Sverrisson skrifar 3. júní 2025 11:34 Davíð Smára Lamude var ekki skemmt eftir afar slæm mistök dómaratríósins sem kostuðu Vestra mark gegn KR á sunnudaginn. vísir/Anton Harkaleg ummæli Davíðs Smára Lamude, þjálfara Vestra, í garð dómara eftir 2-1 tapið gegn Vestra í Bestu deild karla í fótbolta eru ekki á borði aganefndar KSÍ, að minnsta kosti sem stendur.
Þetta segir í svari KSÍ við fyrirspurn Vísis í dag. Málskotsnefnd KSÍ hefur, samkvæmt reglugerð um agamál, rétt til þess að skjóta málum til aga- og úrskurðarnefndar en hefur ekki gert það eftir ummæli Davíðs á sunnudaginn. Davíð var vægast sagt ósáttur við frammistöðu Twana Khalid Ahmed og sagðist hreinlega með kvíðahnút í maganum fyrir hvern leik sem hann dæmdi. „Ég bara spyr, hvað ætlum við að vera lengi í þessari vitleysu? Leik eftir leik er maður settur á leiki sem gerir stór mistök leik eftir leik. Ég er orðin gríðarlega þreyttur á þessu,“ sagði Davíð til að mynda og einnig: „Ég er orðinn hundleiður á þessu. Maður er með hnút í maganum í hvert skipti sem ákveðinn aðili dæmir leiki. Ég fatta ekki alveg hvaða kvóta er verið að fylla í með að þetta sé svona.“ Sérfræðingarnir í Stúkunni á Stöð 2 Sport sýndu reiði Davíðs skilning, enda var löglegt mark tekið af Vestra í leiknum, en voru þó sammála um að hann hefði farið yfir strikið. „Þetta er strax eftir leik. Hann er mjög heitur, reiður, nýbúinn að sjá að það er búið að taka af þeim löglegt mark. Ef þú settir míkrafóninn fyrir framan hann núna þá fengir þú ekki þessa útgáfu af viðtali. Ég held að hann átti sig á því að þetta er ekki dómaranum að kenna. Það er ekki hann sem tekur ákvörðunina með þessa rangstöðu,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson. „Mér fannst hann fara yfir strikið. Ég skil hann en þetta er staða þar sem maður verður að reyna að hemja sig. Við höfum allir, sem höfum þjálfað, lent í því að nota stór orð eða að tilfinningarnar hafi hlaupið með okkur. Þetta er hluti af starfinu,“ sagði Ólafur Kristjánsson.
Besta deild karla Vestri Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira