Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 16. júní 2025 20:02 Aðeins átta íþróttafélög hafa leyfi til að selja áfengi. Fleiri selja þó áfengi. Grafík/Heiðar Forseti ÍSÍ segir ótækt að íþróttafélögin selji áfengi á íþróttaviðburðum án þess að hafa til þess leyfi. Innan við helmingur félaga á höfuðborgarsvæðinu má selja áfengi og ekkert þeirra er með útiveitingaleyfi. Heilbrigðisráðherra segir að skýra þurfi reglur.
Á málþingi í dag um áfengi og lýðheilsu var stefna stjórnvalda rædd í áfengis- og vímuvörnum og íþróttahreyfingin og forvarnir. Nýkjörinn forseti Íþrótta og Ólympíusambands Íslands var einn þeirra sem var með erindi á málþinginu þar sem hann kom meðal annars inn á áfengissölu á íþróttaviðburðum. Á nýafstöðnu íþróttaþingi var samþykkt að ÍSÍ tæki forystu í að móta samræmdar reglur og stefnu um áfengisveitingar á íþróttaviðburðum. „Það er þörf á því að þétta regluverkið í kringum þetta skerpa svona á þessum helstu atriðum að draga úr sýnileika og aðgengi og við fylgjum svona þeirri staðreynd og þekkingu sem við höfum um það hvernig megi draga úr neyslu í stóra samhengi lýðheilsunnar.“ Willum Þór Þórsson, formaður Íþróttasambands Íslands.Vísir/Anton Þeir sem ætla sér að selja áfengi þurfa rekstrarleyfi eða tækisfærileyfi en sótt er um þau hjá sýslumönnum. Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hafa borist umsóknar frá íþróttafélögunum um slík leyfi. Á lista sem fréttastofa fékk frá embættinu, yfir sautján íþróttafélög eru aðeins átta með leyfi til að selja áfengi og eitt er með umsókn í ferli. Dæmi eru þó um að félög hafi fengið tímabundin leyfi fyrir einstaka viðburði eins og karla- og kvennakvöld og þorrablót, eða að umsóknum einhverra félaga hafi verið hafnað. Ekkert þessara átta félaga sem eru með leyfi eru hins vegar með útiveitingaleyfi sem þýðir að ekki má drekka áfengi í stúkunni úti. Þá eru leyfi mismunandi eftir félögum upp á fjölda þeirra sem má afgreiða og hvar í húsunum en flest leyfanna gilda aðeins fyrir samkomusali og veitinga- og kaffihús og í sumum tilfellum gilda leyfin aðeins fyrir hundrað gesti. Þá eru dæmi um að félög sem eru með engin leyfi séu að selja áfengi á leikjum hjá sér. „Það er auðvitað ótæk og við þurfum auðvitað bara að fara yfir þetta og það er auðvitað meðal annars það sem ákall þingsins er um að fara í þessa vinnu þannig að það sé skýrt hvernig við viljum hafa þetta í tengslum við þessa stóru íþróttaviðburði.“ Alma Möller heilbrigðisráðherra fagnar því að nýr forseti ÍSÍ sé að skoða málin „Mér finnast áfengi og íþróttir ekki fara saman því að þarna eru oft börn og þarna er í rauninni verið að normalisera áfengisneyslu og það er engin klisja að það þarf ekkert alltaf að vera vín.Það þarf að skýra reglur og sérstaklega þarf að vernda börn og ungmenni.“
Áfengi Áfengi í íþróttastarfi Börn og uppeldi Mest lesið Trump segir fólki að yfirgefa Tehran hið snarasta Erlent Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Innlent Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Innlent Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Innlent Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Innlent Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Innlent Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti Innlent Ætlaði að myrða tvo þingmenn til viðbótar Erlent „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Innlent Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Innlent Fleiri fréttir Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Lágmarks lokanir í kringum Austurvöll á 17. júní Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Þref á þingi og ráðherra vill bregðast við hækkandi raforkuverði Björgunarsveitir leita Sigríðar áfram Lausir úr haldi grunaðir um líkamsárás á Akureyri Höfðu samband við frönsku lögregluna vegna andlátanna Ný skýrsla: Raforkuverð heimila hafi hækkað um ellefu prósent Verður verkefnastjóri viðburða og grasrótarstarfs hjá Viðreisn Bein útsending: Kynning á þróun raforkukostnaðar og áhrifum á notendur Hvorki bókun 35 né veiðigjöld á dagskrá í dag Módelið svínvirkar fyrir marga en þó ekki alla Sjá meira