Lágkúra og della að mati ráðherra Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. júlí 2025 15:52 Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur um nóg að hugsa þegar kemur að frumvarpi um veiðigjöldin. Vísir/Vilhelm Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir lágkúrulegt af stjórnarandstöðunni að halda því fram að breytingar hjá fiskeldisfyrirtæki á Þingeyri tengist fyrirhuguðum breytingum á veiðigjöldum. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í dag.
Umræður um veiðigjöld standa enn yfir og er umræðan orðin sögulega löng, sú þriðja lengsta frá því Alþingi var sameinað í eina málstofu fyrir 34 árum. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, spurði ráðherra út í umfjöllun úr Morgunblaðinu í gær þess efnis að frumvarpið miðað við ofmetinn hagnað á nokkrum fisktegundum. Skrifin séu della „Í þessari umfjöllun sem um er rætt er því haldið fram að hagnaður verði kerfisbundið ofmetinn fyrir þessar fimm tegundir sem við erum tala um, síld, kolmunna, þorsk, ýsu og makríl. Þetta leiði til hærra veiðigjalds en raunveruleg afkoma útgerðanna í þessum tegundum gefur tilefni til og ástæðan sé sú að það sé verið að notast við markaðsverð í stað bókhaldsverðs og síðan að hlutfall kostnaðar haldist óbreytt þótt markaðsverð á einni tegund hækki og það skekki alla myndina,“ sagði Hanna Katrín og hélt áfram: „Stutta svarið við þessum áhyggjum er að þessi skrif eru della og ég skal fara yfir það fyrir háttvirtan þingmann og aðra áhugasama. Kostnaður útgerðar hækkar ekki þótt miðað sé við eðlilegt markaðsverð. Kostnaðurinn er fastur og hann er þekktur. Það er líka rangt að hagnaðurinn verði kerfisbundið ofmetinn. Sá hagnaður sem hefur legið til grundvallar útreikningum veiðigjalda hefur til þessa verið kerfisbundið vanmetinn. Það er það sem er verið að leiðrétta. Við erum að færa okkur frá útreikningum sem byggja á vanmati aflaverðmætis yfir í markaðsverðið sem endurspeglar raunverulegt verð. Þannig að þetta orðatiltæki um ofmat — ja, það er sérkennilegt, svo ekki sé meira sagt.“ Greinar í Mogganum ekki áhrifavaldur í lífi ráðherra Bergþór spurði hvort afstaða ráðherra væri byggð á greiningu úr atvinnuvegaráðuneytinu eða hvort leitað hefði verið ráðgjafar utanhúss. Hanna Katrín sagði einfalda svarið það að þær greinar sem birtust í Morgunblaðinu til varnar hækkunar leiðréttingar veiðigjalds væru ekki sami áhrifavaldur í hennar lífi og Bergþórs. „Þannig að nei, ég tel ekki ástæðu til að fara enn einn hringinn og leita athugasemda eða viðbragða einhvers staðar annars staðar frá við þessum skrefum. Það er einfaldlega rangt hjá háttvirtum þingmanni að það hafi sífellt verið endurreiknaðar upp einhverjar tölur. Málið hefur bara farið í eðlilega þinglega meðferð. Það hafa verið gerðar breytingar eftir samráðsgátt og breytingar eftir meðferð nefndar. Það er mjög gjarnan gert með þingmál eins og háttvirtur þingmaður þekkir vel. “ Hanna Katrín fór nokkuð fram yfir gefinn ræðutíma í óundirbúnum fyrirspurnum til að snerta á umræðu í þingsal í gær vegna breytinga hjá Arctic Fish á Þingeyri. Fiskeldisfyrirtækið ætlar að færa fóðurstöðu sína til Ísafjarðar sem íbúar á Þingeyri eru verulega uggandi yfir. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur meðal annars sagt ætla að gera hvað hann geti til að stöðva þessi plön. Byrjað að segja upp fólki á gólfinu Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í þinginu í gær að ákvörðun Arctic Fish væri skýr birtingarmynd af þeirri þróun sem sé þegar hafin vegna fyrirhugaðra breytinga á veiðigjöldunum. Hann sagði að ríkisstjórnin yrði að kannast við ábyrgð sína og að allar gjörðir hennar hefðu áhrif. Hann sagði til dæmis að í Ólafsvík hefðu þegar sjö störf tapast. „Bara það eitt að leggja fram veiðigjöldin [frumvarpið] hefur orðið til þess að það er byrjað að selja skip, það er byrjað að færa aflaheimildir á milli eigenda og það er byrjað að segja upp fólkinu á gólfinu.“ Hanna Katrín staldraði við þessi orð. Fyrir neðan allar hellur „Ég verð að segja að lágkúran sem hér var höfð í frammi af hálfu stjórnarandstöðunnar í gær, þegar því er haldið fram að uppsagnir í fiskvinnslufyrirtæki á Þingeyri megi rekja til þessa máls, er fyrir neðan allar hellur,“ sagði Hanna Katrín. „Ég ætla bara að biðja ykkur að hafa það á hreinu að það var ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna sem hækkaði fiskeldisgjaldið fyrir ári síðan töluvert. Það gjald er markaðstengt, það er ekki tengt hagnaði. Við skulum líka hafa það á hreinu að það var ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar sem lagði fyrirvaralaust á þannig innviðagjald í ferðaþjónustu að það er að slátra ferðaþjónustunni okkar í afskekktustu og viðkvæmustu byggðum, ef ríkisstjórnin bregst ekki við, sem hún hyggst gera, þannig að förum varlega. Ég legg kannski til í allri vinsemd að hér tali menn saman í vörninni því þetta er vandræðalegt.“
Alþingi Breytingar á veiðigjöldum Viðreisn Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira