Innlent

Kol­felldu til­lögu minni­hlutans: „Það er meiri­hlutinn sem stýrir dag­skránni“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Hildur segir fjölda stjórnarandstöðuþingmanna í salnum ekki skipta máli, þar sem meirihlutinn haldi á dagksrárvaldinu.
Hildur segir fjölda stjórnarandstöðuþingmanna í salnum ekki skipta máli, þar sem meirihlutinn haldi á dagksrárvaldinu. Vísir/Anton Brink

Aðeins þrír þingmenn greiddu atkvæði með dagskrártillögu stjórnarandstöðunnar við upphaf þingfundar og var hún því kolfelld. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir dagskrárvaldið hjá meirihlutanum, óháð fjölda stjórnarandstöðuþingmanna.

Þingfundur hófst klukkan tíu í morgun, þegar atkvæði voru greidd um tillögu stjórnarandstöðunnar um að fjármálaáætlun yrði sett á dagskrá þingsins í dag. Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins segir tillöguna hafa verið lagða fram vegna fordæmalausrar stöðu í þinginu.

„Kominn 8. júlí og ekki lausn í sjónmáli, þrátt fyrir að við höfum lagt ýmislegt á okkur til þess að svo megi verða. Þá leggjum við til að þingið þó sjái sóma sinn í að afgreiða fjármálaáætlun. Það er lögbundið að gera það og skiptir ofboðslega miklu máli,“ segir Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.

Hefðu getað samþykkt ef þau vildu

Tillagan var felld með 33 atkvæðum stjórnarliða, gegn þremur.

Var enginn í salnum hjá ykkur?

„Jú við þingflokksformenn stjórnarandstöðuflokkanna vorum þarna. Við vitum sem er að það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni. Ef þau hafa áhuga á að samþykkja tillöguna, þá er hún samþykkt, burtséð frá því hversu mörg við erum í salnum.“

Þá virðast þinglok ekki í sjónmáli, þar sem viðræður um mörg mál séu í algjörum hnút.

„Fyrir utan veiðigjöldin eru þetta til dæmis almannatryggingar, víxlverkun örorku og svo auðvitað eru strandveiðarnar því marki brenndar að hér er verið að fara á svig við kerfið eins og það liggur fyrir. Frumvarpið fer gegn vísindalegri ráðgjöf og ógnar sjálfbærni veiða með ófyrirsjáanlegum afleiðingum,“ segir Hildur.

Hafi teygt sig langt í átt til sátta

Í samningaviðræðum um þinglok vegi veiðigjaldafrumvarp atvinnuvegaráðherra þungt.

„Ég ætla ekki að fara í smáatriði um samtölin við samningaborðið en við höfum leitað lausna og teygt okkur langt og sátta í veiðigjaldamálinu.“

Felur það í sér mögulega afgreiðslu málsins á þessu þingi?

„Já, já.“

„Við erum einfaldlega að sinna okkar hlutverki hér í stjórnarandstöðu, sem er að draga línu í sandinn þegar mál eru ekki lagasetningarlega tæk, þrátt fyrir metnað ríkisstjórnar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×