Lífið

Heitustu skvísur landsins fögnuðu ís­lenskri húðvöru

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Embla Líf Fjeldsted og Guðlaug Elísa nutu sín á viðburði Dóttir Skin síðasta laugardag.
Embla Líf Fjeldsted og Guðlaug Elísa nutu sín á viðburði Dóttir Skin síðasta laugardag. Róbert Arnar

Fjöldinn allur af ofurskvísum kom saman í Mýrarkoti síðastliðinn laugardag til að fagna með íslenska húðvörumerkinu Dóttir Skin. Meðal gesta voru raunveruleikastjarnan Patrekur Jaime, markaðsskvísan Embla Óðinsdóttir, fyrirsætan Guðlaug Elísa og auðvitað Helga Sigrún eigandi Dóttir Skin. 

Útgáfuteitið var haldið í Mýrarkoti & Spa og tilefnið var nýjasta húðvara fyrirtækisins Alda [’al:ta] essence serum.

„Ég skírði vöruna Alda í höfuðið á ömmu minni Öldu Bjarnadóttur, í þakklætisskyni fyrir að hafa alið mig upp og gert mig að þeirri konu sem ég er í dag. Amma var ótrúlega hógvær, hugrökk og hlý kona og alvöru kvenskörungur,“ segir Helga Sigrún eigandi Dóttir Skin um nafnið. 

Í fréttatilkynningu segir að viðburðurinn hafi markað tímamót í vegferð vörumerkisins, sem hefur á skömmum tíma vakið athygli fyrir metnaðarfulla vöruþróun og útgáfu fyrstu íslensku sólarvarnarinnar. 

„Með tilkomu Alda ['al:ta] essence serum styrkir Dóttir Skin stöðu sína enn frekar sem hreint, áhrifaríkt og íslenskt húðvörumerki — þróað fyrir íslenskar aðstæður.“

Hér má sjá vel valdar myndir frá viðburðinum:

Helga Sigrún brosti breitt með nýju vöruna.Róbert Arnar
Glæsilegar mæðgur Hauður Helga Stefánsdóttir, Helga Sigrún Hermannsdóttir og Ásta Margrét Hafbergsdóttir.Róbert Arnar
Júlíana Dögg Önnudóttir Chipa í góðum gír.Róbert Arnar
Andrea Röfn og Guðlaug Elísa á spjalli.Róbert Arnar
Vinkonurnar Helga Sigrún og Stella Rósenkranz dansari og listrænn stjórnandi.Róbert Arnar
Mæðgurnar Hauður Helga og Helga Sigrún. Róbert Arnar
Sandra Björg Helgadóttir glæsileg.Róbert Arnar
Eigandinn og ofurskvísan Helga Sigrún!Róbert Arnar
Embla ofurskvís í hvítu.Róbert Arnar
Glæsilegar bestu vinkonur Helga Sigrún og Guðlaug Elísa skella í sjálfu.Róbert Arnar
Skvísufest.Róbert Arnar
Þóra Ólafs samfélagsmiðlastjóri Nova var í stuði!Róbert Arnar
Helga Sigrún var í skýjunum með viðburðinn.Róbert Arnar
Helga Sigrún og Embla ræða nýja serumið.Róbert Arnar
Patrekur Jaime og Embla Óðins í knúsi.Róbert Arnar
Alltaf góð stund fyrir sjálfu!Róbert Arnar
Ásta Margrét ofurskvís.Róbert Arnar
Guðlaug Elísa.Róbert Arnar
Maja dóttir Guðlaugar Elísu var í góðum gír í gellupartýi!Róbert Arnar
Embla, Karítas Ósk og Ágústa Ýr glæsilegar!Róbert Arnar
Embla Líf prófar serumið og spa.Róbert Arnar
Fullt af knúsum!Róbert Arnar
Glæsipíur!Róbert Arnar
Guðlaug Elísa prófar serumið.Róbert Arnar
Nýja varan!Róbert Arnar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.