Tómas Bent seldur til Skotlands Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. ágúst 2025 11:08 Tómas Bent Magnússon og Daði Berg Jónsson í baráttu um boltann fyrr í sumar. Vísir/Anton Skoska úrvalsdeildarfélagið Hearts hefur gengið frá samkomulagi við Val um kaup á miðjumanninum Tómasi Bent Magnússyni.
Hinn 23 ára gamli Tómas Bent samdi við Val fyrir yfirstandandi tímabil eftir að hafa leikið allan sinn feril með uppeldisfélaginu ÍBV. Hann er stór ástæða þess að Valsmenn hafa ekki saknað reynsluboltans Gylfa Þórs Sigurðssonar sem gekk í raðir Víkinga eftir mikið fjaðrafok. Tómas spilaði tíu deildarleiki í sumar og skoraði í þeim tvö mörk. Þá skoraði miðjumaðurinn tvö mörk í 3-0 sigri Vals á Flora Tallinn í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu, áður en Valur datt út gegn Kauno Zalgiris. Valur er hins vegar í efsta sæti deildarinnar og getur styrkt stöðu sína á toppnum enn frekar með sigri gegn ÍA næsta þriðjudag, en þarf að gera það án Tómasar. „Engin óskastaða að selja frá okkur lykilmann“ „Líkt og við höfum sagt þá er engin óskastaða að selja frá okkur lykilmann en þegar svona tækifæri koma upp þá styðjum við auðvitað okkar mann í því. Við fengum ásættanlega upphæð og Tómas stökk að sjálfsögðu á það að fara í skosku úrvalsdeildina. Við þökkum honum fyrir sitt frábæra framlag til félagsins og erum sannfærðir um að hann muni standa sig vel á nýjum stað,“ segir Björn Steinar Jónsson formaður knattspyrnudeildar Vals í tilkynningu félagsins á Facebook.
Mest lesið „Fæ meira borgað fyrir fyrsta bardagann en flestir fá yfir allan ferilinn“ Sport Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Íslenski boltinn Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Enski boltinn Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun Körfubolti Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Enski boltinn Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool Enski boltinn „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Enski boltinn Fjölmargir borguðu sig inn á langþráða æfingu Fótbolti Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Enski boltinn Fleiri fréttir Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Sjá meira