Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. ágúst 2025 09:31 Liam Delap var á skotskónum gegn AC Milan. getty/Richard Pelham Chelsea vann 2-0 sigur á Bayer Leverkusen á föstudaginn og fylgdi honum eftir með því að leggja AC Milan að velli í gær, 4-1. Þetta voru einu tveir leikir Chelsea á undirbúningstímabilinu sem er í styttri kantinum vegna þátttöku liðsins á HM félagsliða.
Liam Delap skoraði tvö mörk fyrir Chelsea gegn Milan. Joao Pedro var einnig á skotskónum og Andrei Coubis gerði sjálfsmark. Youssouf Fofana skoraði mark Milan. Óhætt er að segja að Coubis hafi átt erfitt uppdráttar í leiknum á Stamford Bridge í gær. Hann skoraði sjálfsmark strax á 5. mínútu og eftir átján mínútna leik var hann rekinn af velli fyrir að brjóta á Joao Pedro er hann var að sleppa í gegnum vörn Milan. Joao Pedro kom Chelsea í 2-0 á 8. mínútu þegar hann skallaði fyrirgjöf Pedros Neto í netið. Delap kom inn á sem varamaður eftir klukkutíma og var ekki lengi að láta að sér kveða. Á 67. mínútu kom hann Chelsea í 3-1 með marki úr vítaspyrnu og á lokamínútunni skoraði hann svo annað mark sitt og fjórða mark heimamanna. Chelsea keypti Delap frá Ipswich Town í byrjun júní. Hann lék með liðinu á HM félagsliða þar sem Chelsea stóð uppi sem sigurvegari. Chelsea mætir Crystal Palace í fyrsta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.
Enski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Serbía - Ísland | Mæta Jokic í gini úlfsins Körfubolti Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Man. City verður meistari Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Fleiri fréttir Crystal Palace - Manchester City | Erfiður leikur fyrir ernina Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Sjá meira