Enginn Orri er tíu Madrídingar unnu Real Sociedad 13. september 2025 13:45 Kilyan Mbappé skoraði og lagði upp í dag. Juan Manuel Serrano Arce/Getty Images Orri Óskarsson var fjarri góðu gamni er lið hans, Real Sociedad, mátti þola 1-2 tap gegn Real Madrid í spænska boltanum í dag. Það voru gestirnir í Real Madrid sem tóku forystuna snemma leiks þegar Kilyan Mbappé kom boltanum í netið strax á 12. mínútu. Tuttugu mínútum síðar lentu Madrídingar þó í veseni þegar Dean Huijsen nældi sér í beint rautt spjald fyrir brot á Mikel Oyarzabal, sem var að sleppa í gegn. Þrátt fyrir liðsmuninn náðu gestirnir að tvöfalda forystuna. Arda Güler skoraði þá af stuttu færi á 44. mínútu eftir stoðsendingu frá áðurnefndum Mbappé. Heimamenn minnkuðu muninn á 56. mínútu þegar Oyarzabal skoraði af vítapunktinum, en fleiri urðu mörkin ekki og niðurstaðan því 1-2 sigur Real Madrid. Madrídingar eru því enn með fullt hús stiga á toppi spænsku deildarinnar eftir fjóra leiki, en Real Sociedad sigur í 17. sæti með aðeins tvö stig. Spænski boltinn