Sigur færir Eyjamönnum sæti í efri hlutanum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. september 2025 12:16 Alex Freyr Hilmarsson og félagar í ÍBV þurfa að vinna í Kópavoginum til að komast upp í úrslitakeppni efri hlutans. vísir/diego Síðustu tveir leikirnir í Bestu deild karla fyrir úrslitakeppnina fara fram í dag. Mikið er undir hjá Eyjamönnum sem freista þess að komast í efri hlutann.
Lokaumferð hefðbundinnar deildarkeppni hófst í gær með fjórum leikjum. Víkingur kjöldró KR, 0-7, Stjarnan vann sinn fimmta leik í röð þegar liðið bar sigurorð af Val, 1-2, KA lagði Vestra að velli, 4-1, og FH og Fram skildu jöfn, 2-2. Stigið tryggði FH sæti í efri úrslitakeppninni en Fram verður að bíða úrslitanna úr leik Breiðabliks og ÍBV í kvöld. Eyjamenn eru í 8. sæti deildarinnar með 28 stig og þurfa að vinna Blika til að komast upp í efri hlutann. Ef ÍBV sigrar Íslandsmeistarana fer liðið upp í 5. sætið og Fram myndi því þurfa að gera sér þátttöku í úrslitakeppni neðri hlutans að góðu. ÍBV hefur komið flestum á óvart í sumar en fyrir tímabilið spáðu nær allir liðinu falli. Eyjamenn eru núna sjö stigum frá fallsæti. Blikum hefur ekki gengið vel að undanförnu og eru án sigurs í síðustu sex deildarleikjum. Þeir eru í 4. sæti með 33 stig, aðeins þremur stigum á undan FH-ingum. Staðan í Bestu deild karla. Í hinum leik dagsins mætast neðstu lið deildarinnar, Afturelding og ÍA, á Akranesi. Vinni Skagamenn leikinn senda þeir Mosfellinga á botninn og verða aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti. Eftir þrjú töp í röð vann ÍA góðan sigur á Breiðabliki, 3-0, í síðustu umferð. Afturelding er kaldasta lið deildarinnar en liðið hefur ekki unnið í níu leikjum í röð, eða síðan það bar sigurorð af ÍBV, 1-2, 23. júní. Leikur ÍA og Aftureldingar hefst klukkan 16:45 og verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland 2. Leikur Breiðabliks og ÍBV klukkan 18:00 og verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland. Allir leikirnir í 22. umferðinni verða gerðir upp í Stúkunni klukkan 20:05 á Sýn Sport Ísland.
Besta deild karla Breiðablik ÍBV ÍA Afturelding Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira