„Svekkjandi að við gefum þeim fjögur mörk“ Hjörvar Ólafsson skrifar 17. september 2025 23:36 Sigurvin Ólafsson var svekktur með hversu auðveld mörk Þróttur fékk á sig í Kórnum í kvöld. Vísir/Diego Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, segir stöðuna fína þrátt fyrir 4-3 tap í fyrri leik liðsins við HK í baráttu liðanna um að komast í úrslit umspils um sæti í efstu deild karla í fótbolta sem fram fór í Kórnum í kvöld. „
Þetta var ekkert endanlega sú leikmynd sem ég bjóst við fyrir leikinn. Það var 0-0 í hálfleik en svo fór bara að hellirigna í seinni hálfleik og mörkunum rigndi inn. Við búum til sjö mörk í seinni hálfleiknum sem er svekkjandi,“ sagði Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, svekktur. „Leikmenn geta alltaf gert mistök og ég get ekki álasað þeim fyrir það að mistakast inni á vellinum. En að lenda í því að öll fjögur mörkin koma eftir mistök af okkur hálfu er bagalegt. Það er hins vegar bara hálfleikur og staðan er 4-3. Við höfum fulla trú á að við munum klára þetta verkefni og fara áfram,“ sagði Sigurvin borubrattur. „Strákarnir eiga hrós skilið fyrir að hafa ekki misst móðinn eftir að hafa lent í mótlæti. Það er margt sem á eftir að gerast í þessu einvígi og mikilvægt að missa ekki andann þrátt fyrir að á móti blási. Við hefðum viljað landa sigri eftir að hafa komist í 3-2 og það var lítið að frétta hjá þeim. Við klárum þetta bara í staðinn á heimavellinum okkar,“ sagði hann þar að auki. „Mér fannst við spila þennan leik vel og ef við sleppum því að gefa þeim mörk í seinni leiknum þá fer þetta vel. Við endurheimtum sterka leikmenn í seinni leikinn sem er auðvitað jákvætt. Þeir sem komu inn í þennan leik stóðu sig vel og nú leggjumst við allir saman á eitt að ná í jákvæð úrslit í seinni leiknum,“ sagði Sigurvin um komandi viðureign.
Lengjudeild karla Þróttur Reykjavík Mest lesið Kærastan tók eftir því að eitthvað var að Handbolti Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Handbolti Vara við því að „töfradrykkur“ Haaland geti valdið matareitrun Enski boltinn „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Íslenski boltinn Annað tap spútnikliðsins kom í Manchester Enski boltinn Leggur til breytingar og vill að fótboltinn læri af handboltanum Fótbolti Úlfarnir ráku Pereira Enski boltinn Verður besta sjöþrautakona Íslands villiköttur eða bolabítur? Sport Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Golf Hermann tekinn við Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap „Held að ég geti ekki gert mikið meira“ Uppgjörið: Vestri - KR 1-5 | KR bjargaði sér og sendi Vestra í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - Afturelding 1-0 | Afturelding staldraði stutt við í efstu deild Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Meistararnir klára tímabilið með stæl Sjá meira