Hanna Björk verðlaunuð af leikstjórum á Norðurlöndum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. september 2025 10:50 Hanna Björk segir erfitt að fjármagna heimildarmyndir eins og hana langi til að gera. Hún geri líf sitt erfitt með þessum hætti, að taka að sér klikkuð verkefni sem svo þurfi að ganga upp. Hanna Björk Valsdóttir hlaut Nordic Documentary Producer Award 2025 sem veitt eru framúrskarandi framleiðanda heimildamynda. Leikstjórar á Norðurlöndunum tilnefna einn framleiðanda ár hvert, frá hverju landi og voru verðlaunin veitt á lokahófi Nordisk Panorama hátíðarinnar í Malmö.
Í umsögn dómnefndar segir: „Þessi metnaðarfulli framleiðandi virkjar sköpunarmáttinn á sama tíma og hann styður við leikstjórana sem hann vinnur með. Við dáumst að langvarandi tryggð framleiðandans við listrænar og framsæknar heimildamyndir sem vekja alþjóðlega athygli. Það er aldrei auðvelt að gera heimildamyndir – og enn síður í heimalandi framleiðandans – en þessi staðfasta manneskja heldur áfram af hugrekki og listfengi. Verðlaunin fara til Hönnu Bjarkar Valsdóttur.“ Hanna Björk var í viðtali í vikunni spurð út í heimildarmyndagerð og hvers hún saknaði. Hún sagðist meðal annars sakna mynda sem reyndu að stækka formatið. Hún væri ekki aðdáandi mynda sem styddust við sömu formúlu heldur elskaði hún þegar fólk færi nýjar leiðir. Hanna Björk er framleiðandi og leikstjóri sem sérhæfir sig í framleiðslu á skapandi heimildamyndum í fullri lengd fyrir alþjóðlegan og innlendan markað. Hanna Björk hefur hlotið fjölda tilnefninga til Edduverðlaunana fyrir heimildamyndir og stuttmyndir og hefur unnið Edduna fyrir heimildamynd ársins fyrir Hvell (2013) og Draumalandið (2009). Hún stofnaði sitt eigið framleiðslufyrirtæki Akkeri Films árið 2014 ásamt hljóðhönnuðinum Birni Viktorssyni. Fyrstu kvikmyndir Akkeri Films í fullri lengd voru KAF (2019) og Síðasta haustið (2019) sem sýndar voru víða um heim á kvikmyndahátíðum. Nýlegar myndir eru m.a. Bogancloch (2024) eftir Ben Rivers sem var frumsýnd á Locarno kvikmyndahátíðinni og Jörðin undir fótum okkar (2025) eftir Yrsu Roca Fannberg frumsýnd á heimildamyndahátíðinni CPH:DOX í ár. Jörðin undir fótum okkar verður frumsýnd á Íslandi 2. október á kvikmyndahátíðinni RIFF og fer myndin í sýningar í Bíó Paradís 6. október. Jörðin undir fótum okkar fjallar um lífið á elliheimilinu Grund, fangað á filmu.
Kvikmyndagerð á Íslandi Íslendingar erlendis Bíó og sjónvarp Mest lesið Blómstrar á Ítalíu og venst skömmum innfæddra Lífið Sigfús Pétursson Álftagerðisbróðir látinn Lífið Oddvitaáskorunin: Hefði viljað verja meiri tíma í tónlistina Lífið Innipúkar geti farið á „tryllt djamm“ í Austurbæjarbíói í annað sinn Lífið „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lífið Þessi sigruðu Met Gala Tíska og hönnun „Agaleysið er algjört“ Lífið Gráhærð og aldrei glæsilegri Lífið Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Menning Skráðu dótturina á spjöld sögunnar Lífið Fleiri fréttir Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Patrick Muldoon er látinn Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Sjá meira