Mafíósar dæmdir til dauða Bjarki Sigurðsson skrifar 29. september 2025 16:48 Úr spilavíti í Kambódíu. Þar sem veðmálastarfsemi er ólögleg í Kína hafa Kínverjar reglulega reynt að koma á laggirnar spilavítum í nágrannalöndum. Glæpamenn nota þau stundum til peningaþvættis. Getty/Paula Bronstein Ellefu meðlimir hinnar kínversku Ming-fjölskyldu hafa verið dæmdir til dauða í heimalandinu. 28 aðrir fjölskyldumeðlimir hlutu vægari dóma en fjölskyldan framdi ýmsa glæpi í gegnum samtök sín í Mjanmar, skammt frá landamærunum við Kína.
Ming-fjölskyldan er sögð ein af mafíósafjölskyldum Kína. Frá 2015 hafði fjölskyldan, í slagtogi við aðra glæpahópa, starfrækt ólögleg spilavíti í Mjanmar, smyglað eiturlyfjum yfir landamærin og stundað sölu vændis. Í frétt BBC segir að fjölskyldan hafi með þessu hagnast um tíu milljarða kínverskra júana, tæplega 170 milljarða íslenskra króna. Þá hafi fjölskyldan neytt þúsundir manna til að starfa í símaverum sem voru starfrækt til að svindla á fólki. Talið er að fjölskyldan hafi í gegnum þessi símaver svikið háar fjárhæðir frá grunlausu fólki. Meðlimir fjölskyldunnar voru handteknir í Mjanmar fyrir tveimur árum í stórri aðgerð hernaðarliðs sem er sagt tengjast kínverskum stjórnvöldum. Veðmálastarfsemi er ólögleg í Kína og hafa stjórnvöld lengi reynt að ná tökum á þeirri starfsemi, sem og rekstri þessara símavera. Kínverskir glæpamenn reka þau alla jafna í öðrum ríkjum, nálægt landamærum Kína, svo sem Kambódíu og Mjanmar.
Kína Kambódía Mjanmar Mest lesið Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Erlent Svandís stígur til hliðar Innlent Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Innlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Innlent Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Innlent Konan sem ekið var á er látin Innlent Fleiri fréttir Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Þingið ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Evrópu Bandaríkjamenn leggja hald á olíuflutningaskip undan ströndum Venesúela Heimila nú birtingu gagna úr rannsókn á Epstein Telur það landráð að skrifa um heilsu sína Sætir líflátshótunum og nær ekki að veita friðarverðlaununum viðtöku Vilja skoða samfélagsmiðla íslenskra ferðamanna Fyrirskipa notkun Times New Roman í stað Calibri Selenskí segist reiðubúinn til að boða til kosninga Sjá meira