Missir af landsleik eftir árekstur við stöngina Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. október 2025 11:00 Ollie Watkins var sýnilega kvalinn eftir að hafa lent á stönginni í vináttuleiknum gegn Wales á fimmtudaginn. getty/Marc Atkins Ollie Watkins, framherji Aston Villa, hefur dregið sig úr enska landsliðinu sem mætir Lettlandi í undankeppni HM 2026 á morgun.
Watkins varð fyrir meiðslum þegar hann lenti á stönginni í leiknum gegn Wales á fimmtudaginn. Englendingar unnu 3-0 sigur en öll mörkin komu á fyrstu tuttugu mínútum leiksins. Hinn 29 ára Watkins skoraði annað mark Englands í leiknum en skömmu fyrir hálfleik meiddist hann á vinstri fæti þegar hann lenti á annarri stöng marks Wales. Watkins sneri aftur á völlinn eftir að hafa fengið meðhöndlun en var tekinn út af í hálfleik. Watkins hefur ekki jafnað sig á meiðslunum því hann verður ekki með enska liðinu gegn því lettneska á morgun. Ollie Watkins has been ruled out of tomorrow's @FIFAWorldCup qualifier against Latvia, having not recovered from the knock sustained against Wales.Speedy recovery, Ollie! 👊— England (@England) October 13, 2025 England er með fullt hús stiga á toppi K-riðils undankeppni HM og tryggir sér sæti í lokakeppninni með sigri í Ríga á morgun. Englendingar unnu fyrri leikinn gegn Lettum, 3-0. Watkins hefur skorað sex mörk í tuttugu landsleikjum. Hann hefur skorað eitt mark fyrir Villa á þessu tímabili en hann hefur verið hjá liðinu síðan 2021. Næsti leikur Villa er gegn Tottenham á sunnudaginn.
HM 2026 í fótbolta Enski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Chelsea að ná í Emiliano Martínez Enski boltinn Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Sjá meira