Hemmi Hreiðars orðaður við Val Sindri Sverrisson skrifar 21. október 2025 12:50 Hermann Hreiðarsson er orðaður við þjálfarastarfið hjá Val eftir að hafa gert góða hluti með HK og ÍBV í Lengjudeildinni á síðustu árum. vísir/Viktor Freyr Valsmenn eru sagðir hafa rætt við Hermann Hreiðarsson, þjálfara HK, um að verða næsti þjálfari karlaliðs Vals í fótbolta.
Þetta er fullyrt í grein Fótbolta.net í dag þar sem segir að Valsmenn hafi einnig heyrt í Ólafi Inga Skúlasyni áður en hann var í gær kynntur sem nýr þjálfari Breiðabliks. Srdjan Tufegdzic er þjálfari Vals og hann skrifaði undir samning til þriggja ára í fyrra, þegar hann var ráðinn í stað Arnars Grétarssonar á miðju tímabili. Á fyrsta heila tímabili Vals með Túfa, eins og hann er kallaður, sem aðalþjálfara komst liðið í bikarúrslitaleikinn í ár og mun enda í 2. sæti Bestu deildarinnar, nema eitthvað ótrúlegt gerist í lokaumferðinni um næstu helgi (Valur er þremur stigum fyrir ofan Stjörnuna en með 11 mörkum betri markatölu). Engu að síður hefur verið þrálátur orðrómur um að stjórn Vals íhugi að skipta um þjálfara og hún virðist núna farinn að ræða við mögulega arftaka. Hermann Hreiðarsson var nálægt því að koma liði upp úr Lengjudeildinni tvö ár í röð. Eftir að hafa unnið deildina með ÍBV í fyrra tók hann við HK sem tapaði úrslitaleik á nýafstaðinni leiktíð gegn Keflavík, um sæti í Bestu deildinni. Hermann, sem er 51 árs og lék á sínum tíma 89 A-landsleiki og í 15 ár sem atvinnumaður, hefur auk þess að stýra HK og ÍBV einnig þjálfað Þrótt Vogum sem og kvenna- og karlalið Fylkis, auk þess að vera aðstoðarþjálfari hjá Kerala Blasters á Indlandi og Southend United á Englandi.
Besta deild karla Valur Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn Arsenal - Man. City | Fyrsti titill tímabilsins í boði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Fleiri fréttir Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann „Það var erfitt að anda“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Sjá meira