Gunnlaugur Árni í níunda sæti á heimslista Sindri Sverrisson skrifar 29. október 2025 14:12 Gunnlaugur Árni Sveinsson heldur áfram að gera frábæra hluti í Bandaríkjunum. Gunnlaugur Árni Sveinsson er fyrstur Íslendinga kominn í hóp tíu bestu áhugakylfinga heims eftir að hafa náð 9. sæti á nýjasta listanum.
Gunnlaugur Árni tók enn eitt stökkið upp listann eftir að hafa unnið sigur á Fallen Oak Invitational háskólamótinu í Bandaríkjunum síðustu viku. GSÍ greinir frá því að sigurinn hafi skilað Gunnlaugi 21,85 stigum á heimslistanum og þar með sé um sterkasta sigur frá upphafi að ræða hjá íslenskum áhugakylfingi. Til samanburðar þá fékk Gunnlaugur 14,9 stig á heimslistanum fyrir sinn fyrsta sigur á móti í bandaríska háskólagolfinu í fyrra. Fyrir utan Gunnlaug hefur Gísli Sveinbergsson komist hæst íslenskra karla á heimslista áhugakylfinga, þegar hann náði 99. sæti. Gunnlaugur hefur verið meðal ellefu efstu á öllum fjórum háskólamótum sínum á þessu keppnistímabili en ólíklegt er að hann spili meira á þessu ári. Árangur Gunnlaugs gæti skilað honum enn ofar á heimslista á næstunni og sömuleiðis komið honum inn á móti á sjálfri PGA-mótaröðinni á næstu mánuðum.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira