Lygilega jafnt á toppnum eftir sigur AC Milan Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. nóvember 2025 21:50 Fagna því sem reyndist vera sigurmarkið. MB Media/Getty Images Í lokaleik Serie A, efstu deild karla í fótbolta á Ítalíu, vann AC Milan 1-0 heimasigur á Roma. Sigurinn þýðir að aðeins munar einu stigi á 1. og 4. sæti deildarinnar þegar 10 umferðir eru búnar.
Það verður ekki annað sagt en að sigur kvöldsins hafi verið verðskuldaður. Leikmenn AC Milan fengu urmul marktækifæra en tókst þó aðeins að skora eitt mark. Að sama skapi fengu gestirnir fín færi og í raun ótrúlegt að mörkin hafi ekki verið fleiri. Miðvörðurinn Strahinja Pavlović skoraði það sem reyndist sigurmarkið á 39. mínútu þegar hann kláraði færi sitt af mikilli yfirvegun. Hinn stórskemmtilegi Rafael Leão með stoðsendinguna. Þegar tæpar tíu mínútur voru til leiksloka fengu Rómverjar kjörið tækifæri til að jafna metin. Vítaspyrna var dæmd eftir að boltinn fór í hönd Youssouf Fofana. Á punktinn steig Paulo Dybala en markvörðurinn Mike Maignan las Argentínumanninn eins og opna bók. Maignan varði spyrnu Dybala niðri í hægra horninu og sá til þess að AC var enn með forystuna. Lokatölur í Mílanó 1-0 og toppbaráttan í algleymingi. Ítalíumeistarar Napoli eru með 22 stig en þar á eftir koma Mílanó-liðin AC og Inter með 21 stig sem og Roma sem hefði farið á topp deildarinnar með sigri í kvöld. Bologna og Juventus koma svo þar á eftir með 18 stig.
Fótbolti Ítalski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Albert og félagar trufluðu topplið Inter Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Enski boltinn Fleiri fréttir Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Vinicius hetjan eftir rautt spjald og líflegan grannaslag Albert og félagar trufluðu topplið Inter Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Sjá meira