Sport

Nafnarnir í KA sáu um Val

Stefán Árni Pálsson skrifar
Dagur Árni skoraði tíu í kvöld.
Dagur Árni skoraði tíu í kvöld. Mynd:KA

Víkingar unnu frábæran sigur á Þór í Olís-deild karla í Safamýrinni í kvöld. Lokatölur 36-31 en Þórsarar voru 19-17 yfir í hálfleik.

Ásgeir Snær Vignisson skoraði 8 mörk fyrir heimamenn í kvöld. Gunnar Hrafn Pálsson og Ísak Óli Eggertsson gerðu báðir sjö mörk hvor. Hjá Þór var Bertram Simonsen markahæstur með 6 mörk. Þórsarar voru með fjögur stig fyrir leikinn í kvöld en þetta voru aftur á móti fyrstu stig Víkinga í deildinni. Þeir sitja í 10. sætinu með 2 stig.

Á Hlíðarenda tóku Íslandsmeistarar Vals á móti KA. KA-menn byrjuðu leikinn miklu betur og voru 22-14 yfir í hálfleik. Valsmenn svöruðu aftur á móti í þeim síðari og þegar tólf mínútur voru eftir af leiknum var staðan 30-27 fyrir KA og galopinn leikur.

KA-menn héldu út og gott betur en það. Að lokum unnu þeir 39-33 frábæran útisigur.

Nafnarnir Dagur Árni Heimisson, fyrrum leikmaður Vals, og Dagur Gautason skoruðu báðir tíu mörk í kvöld. Faðir Dags Árna, Heimir Örn Árnason, á það sameiginlegt með syni sínum að hann lék bæði fyrir KA og Val á sínum ferli.

Gunnar Róbertsson hélt áfram uppteknum hætti fyrir Valsmenn en hann skoraði 13 mörk fyrir liðið í kvöld. Þá varði Ágúst Elí Björgvinsson fimmtán skoti í marki KA í kvöld. Liðið er nú í 2.sæti deildarinnar með sex stig á meðan Valsmenn eru í því 8. með 4 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×