„Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 4. nóvember 2025 22:04 Flugfélagið Icelandair hefur ráðist í hagræðingu. vísir/vilhelm Forstjóri Icelandair segir stjórnvöld þurfa að gera það sem sé þveröfugt miðað við áform þeirra vilji þau stuðla að rekstri fyrirtækja í ferðaþjónustu. Fyrirtækið réðst í hópuppsögn í morgun í ljósi versnandi afkomu.
Icelandair gekk í morgun frá starfslokum við 38 starfsmenn. Samkvæmt flugfélaginu er þetta gert í hagræðingarskyni til að snúa við rekstri fyrirtækisins. Flestir sem misstu vinnuna voru starfsfólk á skrifstofu félagsins í Hafnarfirði. Félagið hefur þegar birt afkomuviðvörun þar sem kom fram að kostnaður á fjórðungnum hefði verið meiri en búist var við. Icelandair áætlar að afkoma fyrir vaxtagreiðslur og skatta árið 2025 verði neikvæð um 1,2 til 2,4 milljarða króna. Forstjóri Icelandair segir aðstæður í flugrekstri verulega krefjandi. „Hvað þau geta gert til að styrkja samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu. Það þarf að lækka skatta og gjöld í stað þess að tala um að það séu fyrirhugaðar skattahækkanir og þegar komnar skattahækkanir á greinina. Stjórnvöld verða að gera þveröfugt við það sem þau er að tala um að gera.“ Eingöngu er um skrifstofustörf að ræða en Bogi svaraði ekki hvaða verkefnum starfsfólkið sinnti. „Sérstaklega erfiður dagur hér hjá Icelandair og ekki síst hjá þeim sem eru að hverfa á braut hjá okkur. Frábærir starfsmenn sem hafa unnið hér mjög lengi.“ Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.Vísir/Vilhelm Töluverðar vendingar hafa orðið í ferðaþjónustu hér á landi undanfarið. Flugfélagið Play sem var helsti samkeppnisaðili Icelandair lagði upp laupana í september og þá hætti ferðaskrifstofan Tango travel starfsemi um helgina. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir blikur á lofti í ferðamannageiranum. „Það virðist vera að dragast ansi hratt saman núna og kólna hratt. Afleiðingarnar eru að koma í ljós þessa dagana. Það má ekki gleyma því að það er alltaf árstíðarbundin niðursveifla á þessum tíma en hún virðist vera ýktari núna. Það eru uppsagnir á hótelum, ræstingarfyrirtækjum, veitingageiranum. Þetta sýnir sig þar og síðan náttúrulega ferðaskrifstofur og fleiri sem hafa verið að loka.“ Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofunar.Vísir/Einar Er einhver fleiri svið þar sem við sjáum þessi teikn á lofti? „Byggingariðnaðurinn sem dregst líka alltaf saman yfir vetrarmánuðina frá nóvember fram í mars. Hann virðist líka vera að dragast hraðar saman núna. Þetta er einhvern veginn svolítið snögg kulnun.“ Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir ferðaþjónustuna hér á landi eiga allt sitt undir því að rekstur Icelandair gangi vel. „Það var talað um að margra ára ósjálfbær rekstur gangi ekki og þau séu með plan til að snúa rekstrinum við. Þetta virðist vera liður í þeim aðgerðum. Þetta er gríðarlega mikilvægt félag fyrir okkur öll.“ Jóhannes Þór Skúlason er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.Sigurjón Ólason Jóhannes er ekki bjartsýnn fyrir vetrinum og komandi ári. „Við höfum bent á að það séu ýmis óveðurský á lofti í ferðaþjónustu. Alþjóðakerfið er allt upp í loft. Viðskiptakerfið, tollamál. Við erum að sjá efnahagslegar afleiðingar á okkar sterkustu mörkuðum eins og í Bandaríkjunum. Það er líklegra til að hafa meiri áhrif á neysluhegðun fólks þar, og þar á meðal ferðavilja og ferðahegðun.“
Icelandair Vistaskipti Fréttir af flugi Vinnumarkaður Ferðaþjónusta Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira