Evrópuríki ná saman um verulega útþynnt loftslagsmarkmið Kjartan Kjartansson skrifar 5. nóvember 2025 09:22 Lars Aagaard, umhverfisráðherrra Danmerkur, stýrði fundi evrópusku umhverfisráðherrann í Brussel en Danir fara nú með formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins. Vísir/EPA Bráðabirgðasamkomulag sem umhverfisráðherrar Evrópusambandsríkja náðu í morgun um loftslagsmarkmið sambandsins til ársins 2040 útvatnar verulega tillögu framkvæmdastjórnar þess. Þá samþykktu ráðherrarnir uppfært markmið fyrir 2035.
Samkomulagið felur í sér að ríkin þyrftu aðeins að ná 85 prósent samdrætti í losun fyrir árið 2040 með möguleika á að kröfurnar verði á endanum jafnvel enn vægari. Fyrir árið 2035 stefnir sambandið nú á 66,25 til 72,5 prósent samdrátt í losun. Núverandi markmið til 2030, sem Ísland tekur þátt í, kveður á um 55 prósent samdrátt. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði til að stefnt yrði að níutíu prósent samdrætti gróðurhúsalofttegunda borið saman við losun árið 1990 fyrir lok næsta áratugar með ákveðnum fyrirvörum sem þýddu í reynd 87 prósent samdrátt í Evrópu. Til þess að friðþægja ákveðin ríki fól tillaga hennar í sér að ríkin gætu í fyrsta skipti útvistað þremur prósentum af samdrætti í losun til ríkja utan Evrópu með kaupum á alþjóðlegum kolefniseiningum. Umhverfisráðherra aðildarríkja ESB komu saman til fundar í Brussel í gær til þess að ná bráðabirgðasamkomulagi um nýja markmiðið. Þeir voru undir tímapressu þar sem sambandið vildi ekki mæta tómhent á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem hefst í Brasilíu í næstu viku. Eftir átján klukkustunda langar samningaviðræður samþykktu ráðherrarnir samkomulagsdrög sem ganga umtalsvert skemur en stefnt var að. Málamiðlanir í allar áttir Í stað þeirra þriggja prósenta samdráttar sem framkvæmdastjórnin lagði til að sambandið gæti náð með kaupum á kolefniseiningum samþykktu ráðherrarnir að fimm prósentum gæti verið náð með þeim hætti. Þannig þyrfti Evrópa í reynd að draga úr losun sinni um 85 prósent. Framkvæmdastjórnin féllst einnig á að skoða þann möguleika að heimila ríkjunum að ná allt að fimm prósentum til viðbótar með útvistun til þriðju ríkja utan álfunnar, að því er kemur fram í frétt Reuters. Óháð ráðgjafarnefnd ESB í loftslagsmálum mótmælti á sínum tíma tillögunni um að notkunar alþjóðlegra kolefniseininga yrði leyfð til að ná markmiðinu fyrir 2040. Þannig yrði fjárfestingu í evrópskum iðnaði, sem mikil þörf væri á, meðal annars beint annað. Veikja útfösun sprengihreyfilsvéla og fresta nýju losunarkerfi Þetta voru ekki einu tilslakanirnar til ríkja sem voru gagnrýnin á metnarfyllri tillögu framkvæmdastjórnarinnar, þar á meðal Póllands, Tékklands, Frakklands, Portúgals og Ítalíu. Þannig var samþykkt að fresta nýju losunarkerfi sem átti að taka gildi árið 2027 sem legði gjald á losun vegna vegasamgangna og húshitunar um eitt ár. Pólverjar gagnrýndu að það ætti eftir að hækka eldsneytisverð. Að kröfu Ítala verður stefna ESB um jarðefnaeldsneytisknúnar bifreiðar verði fasaðar út frá og með 2035 veikt umtalsvert, að því er kemur fram í frétt Politico. Nú geri hún ráð fyrir að bifreiðar sem brenna eldsneyti sem er annað hvort kolefnishlutlaust eða losar hlutfallslega lítið magn gróðurhúsalofttegunda verði áfram hluti af bílaflota álfunnar. Fréttin hefur verið uppfærð með nýju markmiði ESB fyrir árið 2035.
Loftslagsmál Evrópusambandið Jarðefnaeldsneyti Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Erlent Fleiri fréttir Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Sjá meira