Útlit fyrir „hrollkaldan vetur“ en eitt ljós í myrkinu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. nóvember 2025 13:10 Snorri Jakobsson greinandi. Vísir/Lýður Valberg Samkeppnishæfni Íslands hefur versnað mjög hratt og er orðin mjög lök. Útlit er fyrir „hrollkaldan vetur“ vegna minnkandi útflutnings og lægri gjaldeyristekna að mati greinanda. Þó er eitt ljós í myrkrinu fyrir árið 2026, vextir ættu að lækka.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Sýnar í gær. Þar var rætt við Snorra Jakobsson greinanda hjá Jakobsson Capital. Íslenska krónan hefur veikst talsvert gagnvart helstu gjaldmiðlum síðustu daga og hefur Snorri fylgst með þeirri þróun. Færri flugsæti, ekki bara vegna Play „Samkeppnishæfni Íslands hefur versnað mjög hratt og er orðin mjög lök. Raunlaun hafa hækkað mjög mikið hérna og raungengni krónunnar hefur styrkst mjög mikið,“ segir Snorri í kvöldfréttum Sýnar. „Við getum tekið sem dæmi að það er samdráttur í framboði flugsæta til Íslands upp á tíu til fimmtán prósent og það er ekki bara íslensku flugfélögin og fall Play, það er líka eitthvað af erlendu flugfélögunum sem eru að fara að fljúga minna hingað til Íslands. Þetta þýðir náttúrulega minni útflutningur og minni gjaldeyristekjur. Þetta gætu verið 60 til 70 milljarða tap í gjaldeyristekjur.“ Krónan sé ákveðinn sveiflujafnari og það sé jákvætt í sjálfu sér að hún sé að veikjast. Snorri segist hinsvegar hræddur um að það verði ekki nóg, það sé til þess fallið að bæta stöðuna en ekki nægjanlega. „Það er líka ýmislegt fleira eins og laxverð, það hefur lækkað um tíu prósent í íslenskum krónum. Þar eru að tapast svona kannski tíu milljarðar. Svo náttúrulega þessi bilun á Grundartanga, þar voru einhverjir tugir milljarðar. Svo að þú ert mjög fljótur að telja upp í hundrað milljarða af töpuðum gjaldeyristekjum á frekar stuttum tíma, þetta er að koma allt núna.“ Heldurðu að áhrifin af falli Play hafi verið vanmetin? „Ég held að menn hafi ákveðið svolítið að horfa framhjá þessari sterku vísbendingu. Það eru búnar að vera vísbendingar um að staðan hafi verið að þyngjast í útflutningsgeiranum en ég held að menn hafi bara svolítið kosið að leiða það hjá sér.“ Tvennt í stöðunni Þurfum við að bregðast við þessu? „Það er útlit fyrir hrollkaldan vetur. Það er lítill sólargeisli í þessu. En það er tvennt í stöðunni. Annað hvort leyfum við bara krónunni að aðlagast og mörkuðum að jafna sig, krónan getur þá veikst og þá verður staðan betri og bara þessi týpíska sveifla sem er. En svo eru náttúrulega líka aðrar aðgerðir, sem er þá að hvetja til útflutnings frekar en að letja til útflutnings. Það væri eitt sem við gætum gert eða að veita einhverja ákveðna tímabundna innspýtingu inn í hagkerfið. Ég held að fjármálaráðherra og forsætisráðherra séu örugglega meira með puttann á púlsinum þar.“ Er ekki eitthvað smá ljós í myrkrinu, minnkar þetta ekki verðbólgu og lækkar vextina okkar? „Þegar það slaknar á hagkerfinu, og ég held að það verði ekki tvö til tvö og hálft prósent hagvöxtur eins og var verið að spá, mér fannst aldrei vera hljóð og mynd við hagvaxtarspár og uppgjörin sem ég var að skoða. Vegna þess að það er búið að vera nokkuð ljóst að það væri bara lítill sem enginn hagvöxtur líklega árið 2026 en það þýðir náttúrulega líka að vextir munu þá koma niður.“
Efnahagsmál Fjármálamarkaðir Mest lesið Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Von á hóflegum hagvexti næstu árin Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Viðskipti innlent Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Viðskipti innlent Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Atvinnulíf Fleiri fréttir Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Sjá meira