Efnahagsmál
1 2 3 4 5 6 … 82 ›
Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Íbúar í hverfi 108 í Reykjavík eru uggandi yfir flutningi kaffistofu Samhjálpar í hverfið. Þeir segjast óttast að börn verði fyrir aðkasti eða vitni að ofbeldi eða vímuefnaneyslu sem þau gætu tekið inn á sig. Þeir óttast einnig að innbrotum muni fjölga samhliða flutningi kaffistofunnar. Þeir, ásamt fleirum, standa fyrir opnum íbúafundi um flutninginn í kvöld. Innlent 4.2.2026 15:30
„Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vilhjálmur Birgisson er ekki ánægður með skilaboð Seðlabanka Íslands til launafólks en seðlabankastjóri og varaseðlabankastjóri sögðu í morgun að bankinn myndi ekki hika við að hækka stýrivexti ef laun hækka. Sérstaklega var minnst á brugðist yrði við ef forsenduákvæði kjarasamninga yrði beitt í september. Það mælir fyrir um að rifta megi samningum ef verðbólga mælist yfir fimm prósentum í ágúst. „Ef forsendur kjarasamninga standast ekki í september þá ber að segja þeim upp,“ segir Vilhjálmur. Viðskipti innlent 4.2.2026 13:55
Seðlabankinn ósammála Daða Má Í nýju riti Peningamála Seðlabanka Íslands segir að nýlegt verðbólguskot sé fyrst og fremst að rekja til hækkunar á opinberum gjöldum og þjónustu um áramót. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur aftur á móti vísað slíku á bug og sagt verðbólguaukningu tilkomna vegna álagningar annarra en ríkisins. Viðskipti innlent 4.2.2026 10:53
Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri og staðgengill formanns peningastefnunefndar, kynna yfirlýsingu nefndarinnar klukkan 09:30. Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu og aðalhagfræðingur bankans kynnir nýja útgáfu Peningamála. Beina útsendingu af kynningunni má sjá hér að neðan. Viðskipti innlent 4.2.2026 09:00
Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtunum óbreyttum og verða þeir því áfram 7,25 prósent. Viðskipti innlent 4.2.2026 08:30
„Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Hagfræðingur og greinandi telur langt þangað til stýrivextir verði lækkaðir á nýjan leik. Afnám verðtryggingar sem forsætisráðherra hefur boðað sé engin töfralausn þó að margt sé jákvætt við áformin. Viðskipti innlent 3.2.2026 20:32
Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Þórður Gunnarsson hagfræðingur segir verðtrygginguna ekki aðalvandamálið. Þegar fólk pirri sig á verðtryggingu sé það í raun að pirra sig á verðbólgunni. Hann segir miklar launahækkanir stærra vandamál. Hann kallar eftir auknu samráði á vinnumarkaði til að finna raunverulegt svigrúm og segir það líklegra til að hafa áhrif á verðbólgu en afnám verðtryggingar. Viðskipti innlent 3.2.2026 09:57
Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist hafa skilning á því að fólki finnist erfitt að greiða hærri gjöld. Það sé fúlt að verðbólga hafi hækkað fyrir helgi en bendir á að undirliggjandi verðbólga sé stöðug. Hún segir fyrsta skref að afnámi verðtryggingar verða stigið um næstu áramót. Viðskipti innlent 2.2.2026 09:50
Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segist ekki ætla að spá fyrir um ákvörðun peningastefnunefndar um stýrivexti en nefndin kynnir ákvörðun sína á miðvikudag. Innlent 1.2.2026 12:52
Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Ég hitti um daginn ung hjón sem eru bæði í fullri vinnu, borga skatta og fylgja „réttu leiðinni“ í fjármálum sem kerfið og bankarnir segja þeim að lifa eftir til að geta borgað af skuldunum. Samt eru þau að kafna í afborgunum lána og greiðslu framfærslu heimilisins. Skoðun 1.2.2026 11:00
„Mjög áhugaverð umræða“ Olíufélögin hafa brugðist illa við málflutningi ríkisstjórnarinnar sem hefur sagt þau bera að ábyrgðar vegna aukinnar verðbólgu. Framsetningin sé villandi og standist ekki skoðun. Innlent 30.1.2026 22:25
Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Eftir tvö vonbrigðaár í loðnunni bárust loks gleðitíðindi í dag þegar Hafrannsóknastofnun lagði til fimmföldun loðnukvótans. Það þýðir að loðnuvertíðin næstu tvo mánuði gæti skilað þjóðarbúinu 35 til 40 milljarða króna útflutningstekjum, að mati forstjóra Síldarvinnslunnar. Viðskipti innlent 29.1.2026 21:42
Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi telur að komandi loðnuvertíð geti skilað útflutningstekjum upp á 35 til fjörutíu milljarða króna. Hundruð manna muni fá vinnu í sjávarútvegsplássum víða um land en þó í aðeins um sex vikur. Viðskipti innlent 29.1.2026 14:12
Daði Már kennir olíufélögunum um Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir aukningu verðbólgu mikið áhyggjuefni. Hann vísar því á bug að aukningin skýrist af gjaldahækkunum ríkisstjórnarinnar og segir olíufélög og bílaumboð bera ábyrgðina. Viðskipti innlent 29.1.2026 12:10
Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Verðbólga mælist 5,2% en hún hefur aukist úr 4,5 prósentum frá því í desember. Verðbólgan mælist umfram svörtustu spár viðskiptabankanna. Framkvæmdastjóri félags atvinnurekenda segir kaldhæðnislegt að ríkisstjórnin - sem telur sitt meginverkefni að lækka vexti - sé nú megin verðbólguvaldurinn og að nú sé hætta á að stýrivextir hækki á ný. Innlent 29.1.2026 11:35
„Menn voru hér með einhverja sleggju“ Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir fregnir af verulega aukinni verðbólgu hafa slegið hann kylliflatan í morgun og nánast steinrotað. Aukning verðbólgu sé í andstöðu við markmið hinna svokölluðu stöðugleikasamninga, sem hafi átt að byggja á því að allir reru í sömu átt til þess að ná verðbólgu niður. „Það sem er sorglegast í þessu öllu saman er að það eru opinberir aðilar sem bera ábyrgð á þessu,“ segir hann og vísar til hækkunar gjalda sem tóku gildi um áramót. Viðskipti innlent 29.1.2026 11:12
Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Verðbólga mælist nú 5,2 prósent, miðað við 4,5 prósent í desember. Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í desember 2025, er 668,3 stig og hækkar um 0,38 prósent frá fyrri mánuði. Verðbólga eykst umfram spár viðskiptabankanna. Viðskipti innlent 29.1.2026 09:00
Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Sjávarútvegurinn bíður nú í ofvæni eftir nýju mati Hafrannsóknastofnunar á stærð loðnustofnsins. Fréttir sem bárust af loðnuleitinni um helgina juku mönnum bjartsýni um meiri loðnukvóta en urðu líka til þess að hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækja hækkuðu í verði. Viðskipti innlent 28.1.2026 21:31
Mjúk lending í Bandaríkjunum og aukinn hagvöxtur í farvatninu Eftir viðburðarríkt ár á alþjóðlegum mörkuðum er nýtt ár gengið í garð þar sem ekki er skortur á fréttaefni enda er heimsmyndin að taka miklum breytingum þessa dagana. Hins vegar er mikilvægt að horfa á staðreyndir þegar lagt er mat á hina efnahagslegu stöðu sem blasir við alþjóðlegum fjárfestum. Umræðan 28.1.2026 12:16
Telur að trygg arðgreiðslufélög ættu að vera „álitlegur fjárfestingarkostur“ Núna þegar aðstæður einkennast af kólnun í efnahagslífinu, aukinni óvissu í alþjóðamálum og útlit fyrir að vextir muni fara lækkandi þá ættu trygg arðgreiðslufélög að reynast „álitlegur fjárfestingarkostur“, að mati hlutabréfagreinanda. Að meðaltali eru félögin á íslenska markaðinum vanmetin um nærri fimmtung. Innherji 25.1.2026 13:16
Kaldar vinnumarkaðstölur „tala með“ vaxtalækkun en óvíst hvort það dugi til Þegar litið er á þróun atvinnuleysis miðað við árstíðabundna leitni þá sýnir hún að vinnumarkaðurinn er að kólna hraðar en hefðbundnar atvinnuleysistölur gefa til kynna, að sögn hagfræðinga Arion banka. Þrátt fyrir að öll tölfræði vinnumarkaðarins „tali með“ frekari vaxtalækkunum er ólíklegt að það dugi til þegar peningastefnunefnd kemur saman í febrúar. Innherji 22.1.2026 15:11
Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Atvinnuleysi mældist 4,2 prósent í desember og voru þá um 9.800 manns á aldrinum 16 til 74 ára án atvinnu. Þegar leiðrétt hafði verið verið árstíðarbundnum sveiflum dróst atvinnuleysi saman um 2,7 prósentustig á milli mánaða. Innlent 21.1.2026 10:12
Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Fjármálaráðherra segir ríkisvaldið aldrei hafa kynnt eins mörg fjárfestingarverkefni og í ár. Stærstu útboð ársins verða hjá Landsvirkjun en mestu framkvæmdirnar hjá Vegagerðinni. Innlent 20.1.2026 22:44
Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Áætluð heildarfjárhæð í fyrirhuguðum verklegum útboðum þeirra ellefu opinberu verkkaupa sem taka þátt í Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins, Samtaka innviðaverktaka og Mannvirkis – félags verktaka árið 2026 nemur 221 milljarði króna. Þetta er 53 prósenta, eða 76 milljarða króna, aukning frá þeim útboðum sem raungerðust árið 2025 en fjárhæð þeirra nam 145 milljörðum króna. Áætlað var að fjárhæð útboða síðasta árs myndi nema 264 milljörðum króna. Viðskipti innlent 20.1.2026 13:30
„Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Formaður Starfsgreinasambandsins segir blasa við að launafólk hafi verið svikið með gjaldskrár- og verðlagshækkunum, þvert á gefin loforð í síðustu kjarasamningsviðræðum. Veitur hafa hækkað fastagjald hitaveitu um nærri fimmtíu prósent á einu ári. Innlent 19.1.2026 11:06
Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Verðbólga gæti sprengt hina svokölluðu „stöðugleikasamninga“ strax í haust. Í lok árs mældist verðbólga 4,5 prósent og Landsbankinn spáir verðbólgu upp á 5,1 prósent í janúar og Arion spaír 4,9 prósent. Forsenduákvæði kjarasamninganna sem skrifað var undir 2024 miða við 4,7 prósent. Innlent 18.1.2026 11:47
Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Greiningardeild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,30 prósent á milli mánaða í janúar. Gangi spáin eftir mun verðbólga aukast úr 4,5 prósentum í 5,1 prósent. Janúarútsölur hafa mest áhrif til lækkunar í mánuðinum en breytingar á gjaldtöku ökutækja hafa mest áhrif til hækkunar, samkvæmt spánni. Mikil óvissa sé þó um hvernig Hagstofan tekur breytingarnar inn í verðmælingar. Deildin spáir því að verðbólga verði í kringum fimm prósent næstu mánuði. Verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands er 2,5 prósent. Viðskipti innlent 15.1.2026 10:44
„Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Formaður Miðflokksins segist hafa varað fjármála- og efnahagsráðherra við því að breytingar á gjaldheimtu af ökutækjum myndi auka verðbólgu, líkt og Landsbankinn hefur gefið út spá um. Þá segir hann stefna í kreppuverðbólgu á Íslandi. Ráðherra segir hann greinilega búa yfir meiri upplýsingum en ráðuneytið, fyrst hann geti fullyrt að spáð verðbólguaukning orsakist aðeins af breytingum á gjaldheimtu. Þá frábiður hann sér allt tal um kreppuverðbólgu. Viðskipti innlent 14.1.2026 16:13
Óvissan „alltumlykjandi“ og verðbólgan gæti teygt sig í fimm prósent Útlit er fyrir mun verri niðurstöðu í verðbólgumælingunni á fyrsta mánuði ársins en áður var spáð, einkum vegna „hrærigrautar“ í boði hins opinbera, og að árstakturinn muni hækka í fimm prósent, að mati hagfræðinga Arion banka. Gangi það eftir er afar ósennilegt að vextir Seðlabankans lækki í næsta mánuði, nema þá mögulega ef tölur af vinnumarkaði gefa til kynna „snöggkólnun“ í hagkerfinu. Innherji 14.1.2026 11:56
Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Fjármálaráðherra rengir ekki spá Landsbankans um að breytingar á gjaldheimtu af ökutækjum muni auka verðbólgu um 0,7 prósentur. Ráðuneytið hafði reiknað með 0,1 til 0,2 prósenta aukningu. Viðskipti innlent 13.1.2026 16:09