Albert skoraði en Fiorentina enn án sigurs og á botninum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. nóvember 2025 16:24 Albert Guðmundsson fagnaði marki sínu hóflega af virðingu við sitt gamla félag. getty/Image Photo Agency Hvorki gengur né rekur hjá Fiorentina en liðið er á botni ítölsku úrvalsdeildarinnar og hefur ekki enn unnið leik á tímabilinu. Í dag gerði Fiorentina 2-2 jafntefli við Genoa í Íslendingaslag. Albert Guðmundsson jafnaði í 1-1 með marki úr vítaspyrnu eftir tuttugu mínútna leik. Þetta var annað deildarmark hans í vetur. Roberto Piccoli kom Fiorentina yfir á 57. mínútu, 1-2, en Lorenzo Colombo jafnaði fyrir Genoa þremur mínútum seinna. Hann hafði klúðrað vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks. Mikael Egill Ellertsson lék allan leikinn fyrir Genoa sem er í 18. sæti deildarinnar með sjö stig. Stefano Pioli var sagt upp störfum sem knattspyrnustjóra Fiorentina í síðustu viku og við starfi hans tók Paolo Vanoli. Hann stýrði Flórensliðinu í fyrsta sinn í dag. Ljóst er að hans bíður erfitt verkefni en Fiorentina er aðeins með fimm stig eftir fyrstu ellefu leiki sína í ítölsku úrvalsdeildinni. Bologna vann góðan sigur á Napoli, 2-0. Thijs Dallinga og Jhon Lucumi skoruðu fyrir Bologna sem er í 5. sæti deildarinnar með 21 stig. Napoli er í 2. sætinu með 22 stig, jafn mörg og topplið AC Milan. Ítalski boltinn