Lífið

Um­hverfis­ráð­herra á von á barni

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Anna Bergljót og Jóhann Páll eiga von á öðru barni sínu.
Anna Bergljót og Jóhann Páll eiga von á öðru barni sínu.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Anna Bergljót Gunnarsdóttir efnafræðingur, eiga von á barni næsta vor.

DV greindi fyrst frá eftir samtal við ráðherrann. Þar sagðist Jóhann ætla að taka sér fæðingarorlof en sagðist ekki hafa ákveðið hve lengi né hvenær.

Anna og Jóhann hafa verið saman síðan 2013 og eiga fyrir dótturina Hrafnhildi Unu sem fæddist í byrjun árs 2023.

Jóhann Páll starfaði lengi sem blaðamaður hjá DV og Stundinni en komst á þing fyrir Samfylkinguna árið 2021. Þegar flokkurinn komst í ríkisstjórn í lok síðasta árs varð hann svo að ráðherra. Anna er doktor í efnafræði frá Cambridge og starfar við Háskóla Íslands.

Jóhann Páll er ekki eini ráðherra ríkisstjórnarinnar sem á von á barni því greint var frá því í september síðastliðnum að Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra ætti von á barni í janúar á næsta ári. Vafalaust hefur það ekki gerst oft að tveir ráðherrar eigi von á barni á sama tíma.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.