Strákarnir æfðu í sólinni í Bakú Valur Páll Eiríksson skrifar 12. nóvember 2025 12:51 Það voru fínustu aðstæður til fótboltaiðkunnar í dag. Vísir/VPE Karlalandsliðið í fótbolta æfði á keppnisvelli morgundagsins, heimavelli Neftci, í dag. Létt var yfir mönnum á æfingu dagsins en einn leikmaður tók ekki þátt.
Valur Páll Eiríksson skrifar frá Bakú Strákarnir mættu flestir til landsins á mánudaginn var og hafa menn flestallir jafnað sig á flugvþreytu og tímamismun, þó það hafi tekið einhverja í starfsteyminu lengri tíma en leikmennina. Breytilegt er hvar Aserbaísjan spilar heimaleiki sína en sá við Ísland er á 11 þúsund manna heimavelli liðs Neftci. Þegar Frakkar koma í heimsókn á sunnudaginn kemur munu þeir hins vegar spila á 30 þúsund manna heimavelli Qarabag annarsstaðar í borginni. Völlurinn er lítill og þröngur. Lítið pláss er til að mynda fyrir þjálfara að athafna sig á hliðarlínunni, aðeins um tveir metrar frá hliðarlínu að bekknum. Búist er við um átta þúsund manns á völlinn hið minnsta og ætti að vera fínasta stemning þegar liðin mætast á morgun. Mikael Anderson var ekki með á æfingu liðsins en aðrir tóku fullan þátt. Arnar Gunnlaugsson og Hákon Arnar Haraldsson munu sitja fyrir svörum á blaðamannafundi klukkan 13:15 í dag. Fundurinn verður sýndur beint á Vísi. Teymi Sýnar mun fylgja okkar mönnum eftir hvert fótmál fram að leik sem hefst klukkan 17:00 á morgun sýndur beint, í opinni dagskrá, á Sýn Sport.
Landslið karla í fótbolta HM 2026 í fótbolta Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Albert og félagar trufluðu topplið Inter Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Uppgjörið KR - Njarðvík 89-70 | KR vann toppslaginn gegn Njarðvík í Vesturbænum Körfubolti Fleiri fréttir Albert og félagar trufluðu topplið Inter Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ Real Madrid - Atlético Madrid | Nágrannaslagur í höfuðborginni 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Sjá meira