Solskjær til í að taka við norska landsliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. nóvember 2025 15:15 Ole Gunnar Solskjær hefur verið atvinnulaus síðan í ágúst síðastliðnum. Getty/Saycan Sayim Ole Gunnar Solskjær er líklegur til að setjast í þjálfarastólinn hjá norska landsliðinu í næstu framtíð enda segist hann vera opinn fyrir því sjálfur.
Solskjær ræddi um landsliðsþjálfarastarfið í hlaðvarpinu „Stick to football“ á dögunum. Solskjær er enn atvinnulaus eftir að hann var rekinn frá tyrkenska félaginu Besiktas í ágúst síðastliðnum en þekktastur er hann fyrir að vera bæði leikmaður og knattspyrnustjóri Manchester United. Solskjær var knattspyrnustjórinn á Old Trafford frá 2018 til 2021. Aðspurður um það hvort hann vilji snúa aftur sem knattspyrnustjóri og taka við norska landsliðinu svaraði Solskjær: „Að sjálfsögðu. Við erum með góðan þjálfara í Ståle. Við erum á leiðinni á HM. En ef hann skrifar ekki undir nýjan samning einn daginn, þá að sjálfsögðu. Hver myndi ekki vilja vinna aftur með Erling Haaland?,“ sagði Solskjær. Solskjær þjálfaði einmitt Haaland þegar hann var þjálfari Molde árin 2017 og 2018. Hann hefur talað um það þegar hann reyndi að fá Manchester United til að semja við Haaland á þessum tíma. Forráðamenn United hlustuðu ekki á hann og nú raðar Haaland inn mörkum fyrir nágrannana í Manchester City. Solskjær segir þó að hann sé ekki örvæntingarfullur að setjast aftur í knattspyrnustjórastólinn og að tilboðið þurfi að vera rétt. „Ég er fótboltamaður, hvort sem það er í Noregi, Svíþjóð eða hvar sem er. Þetta snýst um að vinna með fólki og ég reyni að fá það til að verða besta útgáfan af sjálfu mér,“ sagði Solskjær. Ståle Solbakken hefur sagt að hugsanleg úrslitakeppni HM 2026 verði það síðasta sem hann gerir sem landsliðsþjálfari. Landsliðsþjálfarastarfið gæti því verið í boði á næsta ári.
Norski boltinn HM 2026 í fótbolta EM 2028 í fótbolta Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Arsenal - Man. City | Fyrsti titill tímabilsins í boði Enski boltinn Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Fleiri fréttir Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Arsenal - Man. City | Fyrsti titill tímabilsins í boði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Veik byrjun Vålerenga Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sjá meira