Bannað að snorkla þar sem leiðsögumaður taldi þau ósynd Atli Ísleifsson skrifar 20. nóvember 2025 08:38 Ferðamennirnir áttu bókað í ferðina 1. apríl 2025. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty Ferðaþjónustufyrirtæki hefur verið gert að endurgreiða tveimur ferðamönnum andvirði seldrar snorklferðar eftir að leiðsögumaðurinn meinaði þeim þátttöku á þeim grundvelli að hann teldi þá ósynda.
Þetta er niðurstaða kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Ágreiningurinn í málinu laut að því hvort ferðamennirnir ættu rétt á endurgreiðslu vegna þessa. Fyrirtækið neitaði að endurgreiða það sem ferðamennirnir höfðu greitt fyrir ferðina og krafðist þess að kröfum þeirra fyrir nefndinni um fulla endurgreiðslu yrði hafnað. Sögðust báðir vera syndir Í úrskurðinum eru málsatvik rakin og segir að sóknaraðilinn – ferðamaðurinn – hafi bókað snorklferð (e. snorkeling tour) fyrir sig og samferðarmann sinn hjá fyrirtækinu og greitt fyrir ferðina alls 34.482 krónur. Var ferðin ætluð 1. apríl 2025. Í kvörtuninni segir að þegar þeir hafi mætt á svæðið hafi þeim verið meinuð þátttaka í ferðinni á þeim grundvelli að þeir „uppfylltu ekki sundkröfur sem gerðar væru til þátttakenda“. Ferðamennirnir sögðust þó báðir vera syndir og hafa fullnægjandi hæfni til að taka þátt í snorklferð. Var vísað til þess að við bókun ferðarinnar hafi ekki verið gerðar strangari kröfur um sund- eða þolhæfni en að fyrirtækið hafi í kjölfar atviksins bætt við upplýsingum á heimasíðu sinni þess efnis að þátttakendur þyrftu að geta synt fimm hundruð metra og gengið sex hundruð metra. Þegar bókunin hafi verið gerð hafi þessar kröfur ekki verið aðgengilegar á vef fyrirtækisins. Ferðamennirnir vísuðu sömuleiðis til þess að ekkert sérstakt mat hafi farið fram á sundhæfni þeirra heldur hafi ákvörðun verið tekin út frá huglægu mati leiðsögumanns. Ferðamennirnir töldu sig þó hafa verið örugga í vatni, hefðu lokið sundkennslu og væru færir um ólíkar tegundir sunds. Hafi ekki uppfyllt lágmarkskröfur Við meðferð málsins sögðu fulltrúar fyrirtækisins að það kæmi skýrt fram á vefsíðunni, í tölvupósti sem sendur væri fyrir ferðina og í handbók vegna ferðarinnar að þátttakendur verði að vera öruggir í vatni og geta synt til að taka þátt í ferðinni. „Leiðsögumaður á vegum varnaraðila hafi komist að þeirri niðurstöðu að hæfni sóknaraðila og samferðarmanns hans hafi ekki dugað til að uppfylla þær lágmarkskröfur sem gerðar væru,“ segir í úrskurðinum. Við meðferð málsins komu fram samskiptagögn þar sem ráðið var að enskukunnátta annars ferðamannanna hafi meðal annars verið ástæða þess að þeim hafi verið synjað um þátttöku í ferðinni. Fulltrúar fyrirtækisins vildu þó ekki meina að svo hafi verið, heldur hafi bág sundkunnátta, metin út frá sérþekkingu leiðsögumannsins, verið ástæða þess að ferðamönnunum var neitað um ferðina. Beri að endurgreiða ferðina Kærunefndin mat það sem svo að fulltrúar fyrirtækisins hafi ekki sýnt fram á að ferðamennirnir hafi ekki fullnægt þeim skilyrðum sem sannanlega væru gerð til þátttakenda í snorklferðum á hans vegum. Því verði ekki séð á hvaða forsendum varnaraðili meinaði sóknaraðila og samferðarmanni hans þátttöku í ferð sem þeir höfðu þegar greitt fyrir. Það var því niðurstaða nefndarinnar að fyrirtækið ætti að endurgreiða andvirði ferðarinnar, eða 34.482 krónur.
Úrskurðar- og kærunefndir Ferðaþjónusta Neytendur Mest lesið Gat ekki skoðað mygluherbergið vegna „sofandi barns“ Neytendur Sýn fær flýtimeðferð Viðskipti innlent Bannað að snorkla þar sem leiðsögumaður taldi þau ósynd Neytendur Möguleiki á að verndaraðgerðirnar verði felldar fyrr úr gildi Viðskipti innlent Fjögurra billjóna hagnaður léttir fyrir fjárfesta Viðskipti erlent Fyrirtæki óvenju virk í fasteignakaupum í október Viðskipti innlent Ístak byggir Fossvogsbrú Viðskipti innlent Ísbúð Huppu flytur af Nesinu á Ægissíðuna Viðskipti innlent Ungum konum fjölgar í lögreglunni Atvinnulíf Viðbrögð bankanna eftir vaxtamálið vonbrigði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gat ekki skoðað mygluherbergið vegna „sofandi barns“ Bannað að snorkla þar sem leiðsögumaður taldi þau ósynd Craft Burger Kitchen hafa lokað dyrunum í síðasta skipti Kalla inn aspas í bitum frá Ora Hækka árgjöld kreditkorta í fyrsta sinn í sjö ár Innkalla pastaskeiðar úr plasti Búnir að gefast upp á fríum stæðum við TBR Hundrað þúsund í höfuðstólinn eru orðin að átján í dag Engar Robin klementínur á landinu þessi jól Ótrúlegt að bankarnir hafi komist upp með að „loka sjoppunni“ Fólk vari sig á svikurum á tilboðsdögum „Lafufu“ geti verið hættuleg „Ekki bæta við flík til að fá ókeypis sendingarkostnað“ Vélmenni leysir afgreiðslufólk Sante af hólmi „Íslenski neytandinn er allavega ekki að sýna merki um samdrátt“ Verðmerkingum 49 verslana ábótavant Matarinnkaupum frestað fram yfir mánaðamót Segir „Arnaldarvísitöluna“ lága í samanburði við margt annað Ekki gefinn afsláttur á gjaldskyldu í snjókomu Tilboð á uppþvottavél reyndist of gott til að vera satt Telur breytinguna ekki stuðla að því að fólk festist í húsnæði Heimilin þurfi að undirbúa sig fyrir að það reyni á svigrúm þeirra Endurgreiða viðskiptavinum sem mæta í skimun mánaðariðgjald Kalla inn vínarpylsur vegna aðskotahlutar Kalla inn kjúklingalæri vegna gruns um salmonellu Óvenjulegur moli afrakstur sögulegs samstarfs Áhyggjuefni að fasteignaeigendum fjölgi hjá umboðsmanni skuldara Bæta meðgönguvernd við hefðbundna sjúkdómatryggingu Segjast taka ábendingum alvarlega og hafa verðlagningu til skoðunar Vara við sósum sem geta sprungið Sjá meira