Sædís og Arna norskir bikarmeistarar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. nóvember 2025 16:57 Sædís Rún Heiðarsdóttir hefur unnið þrjá stóra titla á fyrstu tveimur árum sínum í atvinnumennsku með Vålerenga í Noregi. Getty/Pat Elmont Íslensku landsliðskonurnar Sædís Rún Heiðarsdóttir og Arna Eiríksdóttir urðu í dag norskir bikarmeistarar með liði sínu Vålerenga.
Vålerenga vann 2-0 sigur á Rosenborg í úrslitaleiknum á Ullevaal-leikvanginum í Osló. Sædís Rún varð þarna að verða bikarmeistari annað árið í röð með Vålerenga en þetta er fyrsti titill Örnu sem kom til liðsins í haust. Arna var að spila sinn annan bikarúrslitaleik á nokkrum mánuðum en hún tapaði með FH í íslenska bikarúrslitaleiknum í ágúst. Vålerenga varð í öðru sæti í norsku deildinni eftir að hafa unnið tvöfalt í fyrra en endaði tímabilið á því að landa öðrum stórum titli. Linn Vickius kom Vålerenga í 1-0 á 17. mínútu með skoti úr teignum eftir flottan undirbúning frá Karinu Sævik. Sævik lagði líka upp annað markið sem reynsluboltinn Olaug Tvedten skoraði með laglegri vippu yfir markvörðinn á 36. mínútu. Arna spilaði allan leikinn en Sædís Rún fór af velli í hálfleik eftir að hafa fengið gult spjald fyrir brot í lok fyrri hálfleiksins. Vålerenga var að vinna sinn fjórða bikarúrslitaleik í sögunni en þeir hafa allir komið í hús frá og með árinu 2020. Undir lokin kom Elise Thorsnes inn á sem varamaður hjá Vålerenga og tók við fyrirliðabandinu. Hún var að spila síðasta leikinn á glæsilegum ferli sínum. Thorsnes hefur unnið norska bikarinn átta sinnum og með fimm mismunandi félögum. View this post on Instagram A post shared by Norges Fotballforbund (@norgesfotballforbund)
Norski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Sjá meira