Minnst 49 arnarungar komust á legg í sumar Kristján Már Unnarsson skrifar 24. nóvember 2025 10:20 Tveir arnarungar, sem komust á legg síðastliðið sumar, úr sama hreiðri. Svenja N.V. Auhage/Náttúrufræðistofnun Arnarvarp sumarið 2025 reyndist lakara en síðustu tvö ár. Alls urpu að minnsta kosti 60 pör en einungis er hægt að staðfesta að 36 þeirra komu upp ungum. Þetta kemur fram í yfirliti Náttúrufræðistofnunar um arnarvarpið í ár. „
Þrátt fyrir að fá pör komu upp ungum í ár var ungafjöldinn þokkalegur, einkum vegna þess að hlutfall hreiðra með tveimur ungum var tiltölulega hátt,“ segir í yfirlitinu. Alls tókst þessum 36 pörum að koma upp að minnsta kosti 49 ungum og þar af voru 47 merktir í 34 hreiðrum. Arnarstofninn er áfram talinn í hægum en öruggum vexti og eru nú um 90 arnaróðul í ábúð á vestanverðu landinu, frá Faxaflóa norður í Húnaflóa. Í ár voru 102 óðul heimsótt og 74 þeirra talin setin. Arnarhreiður við Breiðafjörð sumarið 2014. Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson Varpárangur var talsvert síðri en árin 2023 og 2024 þegar 43 pör komu upp ungum bæði árin. Fjöldi para er ekki ósvipaðar árinu 2022 þegar 58 pör urpu en einungis 27 þeirra komu upp 38 ungum. Það ár telst eitt af lakari varpárum, segir Náttúrufræðistofnun. Fram kemur í yfirlitinu að á árunum 2019–2024 hafi gps-sendar verið settir á 72 arnarunga. 38 þeirra séu enn lifandi með virka senda og virðist þeir allir við góða heilsu. „Dánarorsakir fuglanna sem hafa drepist eru af ýmsum toga, meðal annars fuglaflensa (þrjú staðfest tilfelli), áflug á raflínu, blýeitrun (eftir að hafa étið gæsarhræ) og drukknun,“ segir Náttúrufræðistofnun, sem vaktar haförninn í samstarfi við Náttúrustofu Vesturlands, Háskóla Íslands og heimamenn. Sumarið 2014 fjallaði Stöð 2 um arnarhreiður skammt frá þjóðvegi:
Fuglar Umhverfismál Dýr Tengdar fréttir Haförninn friðaður í 100 ár á Íslandi Hafernir á Íslandi hafa ekki verið fleiri síðan fyrir aldamótin 1900. Ísland varð fyrst til að friða örninn. Friðunin kom í veg fyrir að tegundin yrði útdauð hér á landi. 30. janúar 2014 10:00 Ernir fljúga yfir vinnusvæði þrátt fyrir sprengingar og véladrunur Miklar sprengingar og drynjandi hávaði vinnuvéla í brúargerð í Þorskafirði hafa ekki fælt haferni frá vinnusvæðinu. Þeir fljúga yfir á hverjum degi til að forvitnast um framvindu verksins, að sögn verkstjóra Suðurverks. 30. september 2021 22:44 Sprengingar trufluðu ekki arnarvarp - sumarbústaðir meiri ógn en vegir Haförn kom upp unga á miðju framkvæmdasvæði á Barðaströnd í fyrrasumar á sama tíma og sprengingar stóðu sem hæst nálægt hreiðrinu. Forstöðumaður Náttúrufræðistofu Vestfjarða segir erni ekki hræðast bíla jafnmikið og gangandi fólk. Sumarbústaðir séu mun verri á arnarsvæðum heldur en vegir. 28. september 2011 19:30 Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira
Haförninn friðaður í 100 ár á Íslandi Hafernir á Íslandi hafa ekki verið fleiri síðan fyrir aldamótin 1900. Ísland varð fyrst til að friða örninn. Friðunin kom í veg fyrir að tegundin yrði útdauð hér á landi. 30. janúar 2014 10:00
Ernir fljúga yfir vinnusvæði þrátt fyrir sprengingar og véladrunur Miklar sprengingar og drynjandi hávaði vinnuvéla í brúargerð í Þorskafirði hafa ekki fælt haferni frá vinnusvæðinu. Þeir fljúga yfir á hverjum degi til að forvitnast um framvindu verksins, að sögn verkstjóra Suðurverks. 30. september 2021 22:44
Sprengingar trufluðu ekki arnarvarp - sumarbústaðir meiri ógn en vegir Haförn kom upp unga á miðju framkvæmdasvæði á Barðaströnd í fyrrasumar á sama tíma og sprengingar stóðu sem hæst nálægt hreiðrinu. Forstöðumaður Náttúrufræðistofu Vestfjarða segir erni ekki hræðast bíla jafnmikið og gangandi fólk. Sumarbústaðir séu mun verri á arnarsvæðum heldur en vegir. 28. september 2011 19:30