Björguðu gömlum manni af efstu hæð Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 27. nóvember 2025 20:16 Eldurinn dreifðist í sjö af átta samliggjandi íbúðarblokkum. EPA Stjórnvöld í Hong Kong hafa hækkað tölu látinna eftir eldsvoðann í Hong Kong upp í 83 og hátt í þrjú hundruð manns er enn saknað. Reiknað er með að slökkvistarfi ljúki að fullu á næstu klukkustundum.
Erlendir miðlar höfðu eftir yfirvöldum í Hong Kong í morgun að 44 hefðu látist eftir að eldur kviknaði í einni Wang Fuk-íbúðablokkanna sem dreifðist síðan hratt milli bygginga. Slökkviliði hefur tekist að slökkva eldinn í fjórum blokkanna og hefur náð tökum á eldinum í hinum þremur. Leit erfið á efri hæðum Fyrr í kvöld greindi slökkvilið frá því að 79 hefðu verið úrskurðaðir látnir á vettvangi og fjórir á sjúkrahúsi. Sjúkraflutningamenn hafi í heildina annast 155 flutninga vegna eldsvoðans. Sólarhringur er síðan greint var frá því að 279 væri saknað en stjórnvöld hafa ekki uppfært þann fjölda síðan. Leitað hefur verið á neðri hæðum blokkanna en erfitt hefur reynst að komast ofar vegna reyks og hita. Wong Ka-wing, slökkviliðsstjóri í Hong Kong, sagði á blaðamannafundi í dag að viðbragðsaðilar haldi ótrauðir áfram við björgunaraðgerðir. „Í morgun björguðum við til dæmis öldruðum karlmanni úr íbúð á 31. hæð í viðkomandi byggingu,“ sagði Ka-wing en þess má geta að blokkirnar eru á 31 hæð hver. Þrír karlmenn á sextugs- og sjötugsaldri hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins, tveir stjórnendur og verkfræðiráðgjafi hjá byggingafyrirtæki sem sá um endurbætur á byggingunum. Þeir eru samkvæmt umfjöllun Reuters grunaðir um manndráp. Talið er að eldurinn hafi breiðst út á milli blokkanna vegna bambusstillansa og nets, sem búið var að koma upp vegna endurbóta, og notkunar á eldfimu frauðefni til viðgerða. Fjallað var um eldsvoðann í kvöldfréttum.
Hong Kong Tengdar fréttir Að minnsta kosti 44 látnir og 280 saknað Slökkvistarfi er að mestu lokið í Wang Fuk íbúðaturnunum í Hong Kong, eftir gríðarlegan eldsvoða sem braust út í gær. Fjörtíu og fjórir eru látnir og 45 alvarlega slasaðir. Um 280 er enn saknað. 27. nóvember 2025 06:38 Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Sjá meira
Að minnsta kosti 44 látnir og 280 saknað Slökkvistarfi er að mestu lokið í Wang Fuk íbúðaturnunum í Hong Kong, eftir gríðarlegan eldsvoða sem braust út í gær. Fjörtíu og fjórir eru látnir og 45 alvarlega slasaðir. Um 280 er enn saknað. 27. nóvember 2025 06:38