Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Vinir Hallarinnar 2. desember 2025 15:35 Allir miðar seldust upp á mettíma á tónleika Bubba Morthens í Laugardalshöll 6. júní 2026. Því verða haldnir aukatónleikar föstudaginn 5. júní. Forsala fyrir Bubbaklúbbinn hefst á morgun, miðvikudaginn 3. desember, kl. 10. Uppselt varð á tónleika Bubba Morthens í Laugardalshöll 6. júní 2026 á örskotsstundu. Aðdáendaklúbbur Bubba fékk forgang í miðasölu og var eftirspurnin eftir miðum langt um meiri en þeir miðar sem voru í boði. Því hefur verið ákveðið að hefja sölu á aukatónleika sem haldnir verða föstudaginn 5. júní. „
Við bjuggumst aldrei við þessari eftirspurn og miðað við hana hefðu þessir tónleikar geta farið fram á Laugardalsvellinum,“ segir Ísólfur Haraldsson, umboðsmaður Bubba Morthens. „Gamla góða Laugardalshöllin hentar best því sem við viljum bjóða upp á og aukin eftirspurn gefur okkur tækifæri til að gera þetta enn stærra og flottara.“ Hann segir þakklæti vera efst í huga hópsins stendur á bak við tónleikana. „Það eru sannarlega forréttindi að geta unnið viðburðinn svona áfram. Þegar allir miðar eru seldir með þetta löngum fyrirvara, þá fer öll einbeiting í það að huga að viðburðinum sem slíkum og gera hann sem glæsilegastan og eftirminnilegastan fyrir tónleikagesti.“ Hann segir ólíklegt að fleiri tónleikum verði bætt við. „Við sjáum það allavega ekki fyrir okkur að svo stöddu.“ Forsala fyrir Bubbaklúbbinn hefst á morgun, miðvikudaginn 3. desember, kl. 10. Ef það verða til miðar eftir forsölu hefst sala á Tix fimmtudaginn 4. desember. Hér getur þú skráð þig í Bubbaklúbbinn.
Mest lesið „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Nakinn á kóræfingu Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira