Halla Bergþóra sækir um en ekki Páley Atli Ísleifsson skrifar 8. desember 2025 14:51 Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, Birgir Jónasson, fangelsismálastjóri, og Grímur Hergeirsson, lögreglustjóri á Suðurlandi og settur ríkislögrelgustjóri. Vísir Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hefur ákveðið að sækja um embætti ríkislögreglustjóra sem hefur verið auglýst laust til umsóknar. Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, hyggst ekki sækja um stöðuna.
Halla Bergþóra staðfestir í samtali við fréttastofu að hún ætli sér að sækja um og að hún hafi tekið ákvörðunina að „vel ígrunduðu máli“. Dómsmálaráðuneytið auglýsti í síðustu viku embætti ríkislögreglustjóra laust til umsóknar. Þetta var gert eftir að Sigríður Björk Guðjónsdóttir lét af embætti í kjölfar gagnrýni um greiðslur til ráðgjafarfyrirtækis, en á sama tíma var tilkynnt að hún tæki við stöðu sérfræðings í aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi í dómsmálaráðuneytinu. Dómsmálaráðherra ákvað þá einnig að skipa Grím Hergeirsson, lögreglustjóra á Suðurlandi, tímabundið í embætti ríkislögreglustjóra. Samkvæmt svörum frá Grími hefur hann ekki tekið ákvörðun um hvort að hann muni sækja um embættið. Birgir vill ekki upplýsa hvort hann muni sækja um Í auglýsingu ráðuneytisins segir að frestur til að sækja um embættið renni út 18. desember. Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, staðfestir í samtali við fréttastofu að hún ætli sér ekki að sækja um embætti ríkislögreglustjóra og að hún hafi upplýst sitt samstarfsfólk um ákvörðunina. Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra og settur forstjóri Fangelsismálastofnunar, sagðist ekki vilja upplýsa um hvort hann muni sækja um stöðuna þegar fréttastofa leitaði til hans. Birgir var í hópi þeirra sem sótti um stöðu lögreglustjóra á Suðurnesjum sem auglýst var laus til umsóknar í haust. Alls sóttu sex manns um þá stöðu, en dómsmálaráðuneytið ákvað að fresta skipun á nýjum lögreglustjóra þar til að búið er að skipa nýjan ríkislögreglustjóra. Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, hefur sagst ekki vera búinn að gera upp hug sinn hvort hann muni sækjast eftir embætti ríkislögreglustjóra sem nú er auglýst. Öflugur leiðtogi með skýra sýn Í auglýsingu dómsmálaráðuneytisins segir að leitað sé að öflugum leiðtoga með skýra sýn og getu til þess að leiða fólk til árangurs, í þeim tilgangi að móta og efla starfsemi embættisins. Helstu hæfniskröfur eru eftirfarandi: Öflug leiðtogahæfni og farsæl reynsla af stjórnun og stefnumótun er skilyrði. Rík samskipta- og samstarfshæfni er skilyrði. Þekking og yfirsýn yfir verkefni lögreglunnar og skýr framtíðarsýn varðandi embætti ríkislögreglustjóra og þróun löggæslu er skilyrði. Þekking og reynsla á sviði reksturs og áætlanagerðar er skilyrði. Þekking og reynsla af umbótastarfi er kostur. Reynsla af alþjóðasamstarfi er kostur. Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun. Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. Dómsmálaráðherra skipar í embætti ríkislögreglustjóra til fimm ára í senn og skipað verður í embættið þegar nefnd sem metur hæfni umsækjenda hefur lokið störfum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að liðnum umsóknarfresti.
Lögreglan Skipun ríkislögreglustjóra Mest lesið Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Fleiri fréttir Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Sjá meira