„Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman“ Smári Jökull Jónsson skrifar 11. desember 2025 21:03 Verk fanganna eru seld undir merkinu Fangaverk. Vísir/Lýður Valberg Fangi á Litla-Hrauni segir útgáfu matreiðslubókar vera verkefni sem hafi gefið honum mikið. Hann segir hæfni fanga vannýtta og þegar öllu sé á botninn hvolft snúist vinna sem þessi um hvernig einstaklinga við viljum fá aftur út í samfélagið.
Fangavörður á Litla-Hrauni fékk hugmyndina að bókinni fyrir fimm árum þegar hún var verslunarstjóri í fangelsinu. „Mér fannst fangar oft vera að kaupa svolítið skemmtileg hráefni til að útbúa sér mat og þetta vakti forvitni hjá mér. Þeir fóru að segja mér frá ýmsum réttum og þeir gáfu mér uppskriftir og kenndu mér aðferðir, mér fannst þetta vera eitthvað jákvætt sem var að eiga sér stað,“ sagði Margrét Birgitta Davíðsdóttir sem nú starfar á Litla-Hrauni sem fangavörður. „Það er fullt af hæfileikabúntum hérna inni“ Hugmyndin fór á ís vegna kórónuveirufaraldursins. Þegar Jói Fel hóf störf í eldhúsinu í sumar fór boltinn að rúlla á ný. „Hann fer í framkvæmdina, honum leist vel á og hann fer í framkvæmdina með föngunum í fangelsum landsins. Hjálpar þeim að betrumbæta uppskriftir og skrá niður. Ég veit að þessi vinna var ómetanleg fyrir hann og fangarnir ánægðir með hans framlag.“ Margrét Birgitta í versluninni á Litla-Hrauni þar sem hugmyndin að bókinni vaknaði.Vísir/Lýður Valberg Niðurstaðan er bókin vatn og brauð sem er seld á vefnum Fangaverk. Uppskriftirnar eru með fjölþjóðlegum blæ og segir Margrét hæfileikaríka matreiðslumenn hafa leynst í hópi fanganna. „Alveg 200%. Það er fullt af hæfileikabúntum hérna inni sem eiga mjög flottar uppskriftir og myndu nýtast vel úti í samfélaginu á veitingastöðum og mötuneytum og annað,“ bætir Margrét við og segist sjálf vera búin að prófa uppskriftina „Vandræðalaxinn“ sem finna má í bókinni. „Mikilvægt að taka þátt í einhverju sem skiptir máli“ Í bókinni eru fimmtíu uppskriftir frá þrjátíu og fimm föngum. Nöfn rétta í bókinni hafa vakið athygli en þar má til dæmis finna "Ólöglega innfluttan baunarétt", "Jailhouse rock" og "Hæstarétt". Fangi sem á þrjár uppskriftir í bókinni segir verkefnið hafa gefið honum mikið. „Fyrir okkur er þetta mjög mikilvægt og það er mikilvægt að fá að taka þátt í einhverju sem skiptir máli. Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman,“ sagði hann í viðtali við fréttamann á Litla-Hrauni í dag. Snýst um hvernig einstaklingar koma út í samfélagið Hann segir fangana elda sjálfir ofan í sig, stundum tveir og tveir saman í hópum. Hann segir þá hafa mikinn metnað fyrir útgáfu bókarinnar. „Fyrir mér snýst þetta um það, þegar öllu er á botninn hvolft, hvernig einstaklinga við viljum fá aftur út í samfélagið. Afplánun getur alveg verið tækifæri fyrir marga og mér finnst við þurfa að nýta þetta tækifæri í að efla færni og getu fanga svo þeir eigi frekar séns í að komast aftur út í samfélagið.“ Eins og áður segir á hann sjálfur þrjár uppskriftir í bókinni, meðal annars Jailhouse rock en viðurkennir að hann þurfi að vera duglegur að prófa aðrar en hans sjálfar. „Ég er búinn að heyra að þetta hefur vakið athygli og það er mjög gaman, gleður mig mikið.“ Það besta við betrunarferlið Í vélsmiðjunni fer fram ýmis konar sérhæfð vinna. Framleiddir eru kertastjakar og bakkar auk glæsilegrar sandkassagröfu. Guðmundur Friðmar Birigsson hefur starfað með föngunum í vélsmiðjunni. Guðmundur Friðmar Birgisson hefur starfað í vélsmiðjunni á Litla-Hrauni.Vísir „Þetta eru kannski á bilinu þrír til fimm eða sex sem eru að vinna hér, það fer mikið eftir stöðu á verkefnum,“ segir Guðmundur og bætir við að verkefni sem þetta sé gríðarlega mikilvægt. „Ég held að þetta sé eitthvað það besta þegar maður talar um betrunarferli.“ Hann segir nóg að gera á vikunum fyrir jól. Vinnan er sérhæfð, einhverjir séu með bakgrunn og því þurfi að velja eftir getu og hæfni. Þessi sandkassagrafa og bakkinn fyrir framan er meðal þess sem framleitt er í vélsmiðjunni.Vísir „Auðvitað læra margir og maður kennir. Það eru margir sem hafa farið mjög metnaðarfullir héðan og tilbúnir að læra meira,“ bætir Guðmundur við. „Við erum að reyna að þoka þeim upp í áttur, níur og tíur Í trésmiðjunni er svo búið til handverk með sál eins og verkstjórinn Jón Ingi Jónsson kemst að orði. Þar eru framleiddir vinsælir pizzabakkar og glæsilegir takkóbakkar sem myndu sóma sér vel á hverju heimili. „Hér á Litla-Hrauni er kennd trésmíði einu sinni í viku og við erum í frábæru samstarfi við Fjölbrautaskóla Suðurlands og erum með ofsalega góða kennara þar. Jón Ingi Jónsson er verkstjóri trésmiðjunnar á Litla-Hrauni.Vísir/Lýður Valberg „Svo tek ég við, ég er smiður og ég er að reyna að kenna þeim allt sem ég kann, reyna að hækka spilin hjá strákunum. Þeir eru kannski með tvista og þrista en við erum að reyna að þoka þeim upp í áttur níur og tíur.“ Þarf stundum að eiga „flauelsklætt kurteist nei“ í pokahorninu Hann segir afraksturinn vera til sölu á síðunni Fangaverk. Viðtökur fanganna við þessum verkefnum hafa verið jákvæð, öll rútína fyrir þá sé jákvæð þar sem þeir geta jafnvel gleymt því í smástund að þeir séu í fangelsi. „Í gegnum trésmíðina eru tveir strákar búnir með sveinspróf, byrjuðu hér og fengu áhuga og héldu áfram. Fóru í raunfærnimat og í sveinspróf.“ Handverk sem framleitt er í trésmiðjunni.Vísir Samstarfið við fangana hefur gengið vel að sögn Jóns Inga. „Þetta er handverk með sál sem er unnið af strákum í bata. Þeir eru allir með smá athyglisbrest en það er allt í lagi því ég er með það líka. Svo þarf maður að eiga flauelsklætt kurteist nei stundum en þetta gengur vel og mér finnst þeim líða vel og mér líður vel yfir því.“ Hægt er að fylgjast með framleiðslu Fangaverks inni á samfélagsmiðlum, bæði Instagram og Facebook.
Fangelsismál Handverk Matur Mest lesið Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Innlent Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Innlent Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Erlent Lést í sprengingunni Innlent Grunur um að íkveikja hafi valdið sinubruna Innlent Robert Mueller er látinn Erlent Framboðslisti Vinstrisins í Reykjavík kynntur Innlent „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Innlent Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Innlent Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Innlent Fleiri fréttir Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Grunur um að íkveikja hafi valdið sinubruna Framboðslisti Vinstrisins í Reykjavík kynntur Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Einn handtekinn til viðbótar í tengslum við hópárásina Atvinnurekendur farnir að nota gervigreind til að sía umsóknarflóðið Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Guðrún um Þorgerði: „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi“ Veittu ferðamönnum í vanda aðstoð við Héðinsfjarðargöng Rannsókn á banaslysinu í Fóðurblöndunni gæti tekið vikur og jafnvel mánuði Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Slysið í Fóðurblöndunni, möguleg afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu og enn meira óveður Lokað fyrir umferð um Öxnadalsheiði Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Fríhöfnin gjörsamlega galtóm „Auðvitað mikið áfall“ Sprengingin hjá Fóðurblöndunni og áhyggjur af stríðinu í Íran Fimm bíla árekstur á Sæbraut Gert að rannsaka tvö mál betur en gefa ekkert upp Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Lést í sprengingunni Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innviðir og íbúðir eiga að rísa samtímis í Hallahverfi Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Sjá meira